A A A

Dagný

Er sumarið kom yfir sæinn
og sólskinið ljómaði um bæinn
og vafði sér heiminn að hjarta,
ég hitti þig, ástin mín bjarta.

Og saman við leiddumst og sungum
með sumar í hjörtunum ungu,
- hið ljúfasta' úr lögunum mínum,
ég las það í augunum þínum.

Þótt húmi um heiðar og voga,
mun himinsins stjörndýrð loga
um ást okkar, yndi og fögnuð,
þó andvarans söngrödd sé þögnuð.

Tómas Guðmundsson / Sigfús Halldórsson
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00