A A A

Síldarvísa

Þær heilsuðu okkur með svellandi söng
síldarstúlkurnar
og þá voru kvöldin svo ljós og löng,
en ljúfastar næturnar.
Því við vorum ung og ástin hrein
og ólgandi hjartans blóð.
Og sumarið leið og sólin skein
og síldin á miðunum óð ...

Ennþá er mér í minni
meyjarbros og tár,
skellóttur skúluklútur
og skollitað undir hár,
glettni í gráum augum
gamanyrði á vör,
dansinn á bátabryggju
blossandi æskufjör.

Spriklandi silfur í sólareldi
sökkhlaðinn bátur í áfangastað,
landað í skyndi og kysst að kveldi,
kannastu bróðir við lífið það?
Köld eru kynni haustsins,
kveðjustundin sár ...
ennþá er mér í minni
meyjarbros og tár.

Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ - 1953
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirđi | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opiđ alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00