A A A

Slá í gegn

Ef ég ætti óskastein,
yrði óskin aðeins ein.
Ég er alltaf að reyna,
þú veist hvað ég meina,
um frægð og framandi lönd.

    Slá í gegn, slá í gegn,
    þú veist ég þrái að slá í gegn.
    Af einhverjum völdum
    hefur það reynst mér um megn.

Ég gæti boðið þér betri kjör,
bíl og íbúð, brúðarslör.
Vakinn og sofinn,
stálsleginn dofinn,
ég reyni að öðlast frægð.

    Slá í gegn ...

Ég myndi gera næstum því
hvað sem er fyrir frægðina,
nema kannski
að koma nakinn fram.

Ó,ó, allt annað fyrir það
Ég færi í heljarstökk afturábak
af littlu bretti fyrir frægðina.

    Slá í gegn ...


Valgeir Guðjónsson
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirđi | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opiđ alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00