A A A

Ţín innsta ţrá

Þína innstu þrá, fær ekkert sefað.
Í heimi óskadraums þú hefur lifað.
Sá er öðlast margt, meir óskar sér.
Ást þína mamma, mun ég geyma í hjarta mér.

Góða nótt minn litli ljúfur, mitt ljósið bjarta.
Lífið hefur öðlast tilgang með þér.
Þú átt sömu þrána í þínu hjarta.
Þrána sem um eilífð mun fylgja þér.

Ég sleit ung þau bönd, sem mig heima bundu.
Eirt ég hvergi hef frá þeirri stundu.
Elsku mamma mín, hve ég skil þig nú.
Einhvern tíman verð ég alein eins og þú.

Góða nótt minn litli ljúfur...

Erl. lag / Jóhanna Erlingsdóttir
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirđi | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opiđ alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00