Íbúar í Hnífsdal geta nú glaðst yfir því að nú er hægt að fá
ADSL-tengingar í Hnífsdalnum. Starfsmenn Snerpu veita fúslega
allar frekari upplýsingar í síma 520-4000 eða í tölvupósti á
snerpa@snerpa.is. Við minnum á tilboð okkar til Hnífsdælinga sem var
borið í hús um daginn og einnig á það að Snerpa getur séð um pöntun á
ADSL-línunni hjá Símanum. Einnig viljum við taka fram að binditilboð
Símans bindur notendur einungis gagnvart ADSL-línu en netþjónustuna
þarf ekki að kaupa hjá Símanum sé binditilboðinu tekið. - Betri
þjónusta...!

Snerpa | fimmtudagurinn 1. desember 2005