A A A

Nú þegar Android símarnir eru að tröllríða farsímamarkaðinum, eru kannski fæstir sem gera sér grein fyrir því að þeir eru komnir með öfluga ferðatölvu í vasann. Til eru "apps" eða smáforrit fyrir nánast hvert tækifæri og vandamál og hef ég því tekið saman brot af því besta til að deila með ykkur. 

...
Meira

Í dag gekk Snerpa frá kaupum á hýsingarreksti Netheima. Rekstur Netheima var endurskipulagður fyrir nokkru síðan og hefur hýsingarþjónustan í millitíðinni verið í umsjón Særafs sem tók við flestum þeim verkefnum sem Netheimar sinntu áður.

 

Einn af þeim þáttum í rekstri Netheima, þ.e. hýsingarreksturinn, var ljóst að var til sölu við þessar breytingar og eftir nánari skoðun varð úr að Snerpa keypti þennan hluta rekstursins. Í því felst að Snerpa kaupir m.a. af Netheimum allan vélbúnað sem notaður var til þjónustunnar og munu viðskiptavinir Netheima að þessu leyti því framvegis verða í viðskiptum við Snerpu.

Salan á sér nokkurn aðdraganda og var viðskiptavinum kynnt væntanleg breyting á frumstigi samningaviðræðna og áhersla lögð á að rask af breytingunum yrði sem minnst. Ýmsir nýir möguleikar opnast þó við yfirfærslu þjónustunnar og verða þær betur kynnntar viðkomandi viðskiptavinum í framhaldinu.

 

Vegna þessara breytinga mun þurfa að flytja vélbúnað milli húsa og hefur verið ákveðið að það verði gert þriðjudaginn 24.janúar nk. og vegna þess verður þjónustan óaðgengileg frá kl. 13 þann dag og fram eftir degi. Að sjálfsögðu verður roftími hafður í lágmarki en nauðsynlegt er að framkvæma breytingarnar á virkum degi til að hafa fullt aðgengi að öðrum aðilum sem að breytingunum koma, t.d. þarf að flytja tengingu við IP-net Símans samhliða.

 

Þegar filmumyndavélarnar voru upp á sitt besta, var það venjan að geyma negatívu filmurnar á góðum stað og jafnvel setja þær í öryggishólf í banka. En þegar stafræna byltingin kemur, virtist þessi aðferð gleymast. Það jafnvel hvarlar ekki að fólki að harðir diskar eru viðkvæmir hlutir og geyma oftast myndirnar á einum stað. Að færa myndirnar á flakkara er ekki að taka afrit, heldur bara að færa til vandamálið. Best er að hafa afrit af myndum á tveimur stöðum.


Nokkrar aðferðir til að geyma myndir á öruggan máta:


Afritun á harða diska:

Þægilegast og fljótlegast er að taka afrit á annan harðan disk, flakkara eða aðra tölvu. Hægt er að nota forrit til að auðvelda afritun enn frekar með sjálfvirkni.

 

Geymslur á netinu:

Dropbox - frí 2 GB, hægt að fá allt að 100 GB

123.is - allt að 100 GB

Picasa Web Albums - frí 1 GB, hægt að fá allt að 16 TB eða 16.384 GB.


Afritun á CD / DVD / Blu-Ray:

Einnig getur verið gott að hafa afrit á diskum og jafnvel gefa ættingjum og vinum afrit.

Tölvukrækir.
Tölvukrækir.

Starfsfólk Snerpu óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla og þakkar viðskiptin á árinu sem er að líða.

...
Meira
Margir makkanotendur halda að þeir séu öruggir fyrir vírusum og að það sé bara vandamál sem Windowsnotendur þurfa að stríða við. En er það svo? Hér er smá lestrarefni sem allir makkanotendur ættu að kynna sér.

 
Ekki bíða eftir að makkinn þinn smitist, settu öryggið á oddinn í dag.

 
Nýr vefur Tálknafjarðarhrepps.
Nýr vefur Tálknafjarðarhrepps.
Tálknafjarðarhreppur hefur tekið í gagnið nýjan vef sem keyrir um á vefumsjónarkerfinu Snerpill frá Snerpu. Við hönnun hans var litið til þess að hafa sem greiðast aðgengi að þeim upplýsingum sem notendur þurfa hvað mest á að halda.

Tálknafjarðarhreppur er sjötta sveitarfélagið á Vestfjörðum sem nýtir sér Snerpils vefumsjónarkerfið en það hefur verið í mikilli sókn á undanförnum árum.

Skoða má nýjan vef hreppsins á talknafjordur.is
Martin Ashkenazy-Jones yfirþjálfari, Guðbjörg Drengsdóttir formaður Vestra, Karlotta María Þrastardóttir Vestrapúki og Matthildur Helgadóttir Jónudóttir framkvæmdarstjóri Snerpu.
Martin Ashkenazy-Jones yfirþjálfari, Guðbjörg Drengsdóttir formaður Vestra, Karlotta María Þrastardóttir Vestrapúki og Matthildur Helgadóttir Jónudóttir framkvæmdarstjóri Snerpu.

Sundfélagið Vestri og Snerpa hafa gert með sér styrktarsamning fyrir næsta tímabil og færði Snerpa félaginu Toshiba Satellite fartölvu við handsal samningsins. Starfsmenn Snerpu óska sundfélaginu til hamingju með nýju vélina sem mun koma að góðum notum við skipulag og skráningu á mótum og öðru starfi félagsins. 

Snerpa óskar einnig sundfélaginu góðs gengis á komandi vetri.

Framkvæmdarstýrurnar Matthildur Helgadóttur hjá Snerpu og Díana Jóhannsdóttir hjá UMFB handsala samstarfið.
Framkvæmdarstýrurnar Matthildur Helgadóttur hjá Snerpu og Díana Jóhannsdóttir hjá UMFB handsala samstarfið.
1 af 2

Körfuknattleiksdeild Ungmennafélags Bolungarvíkur og Snerpa hafa gert með sér samstarfssamning fyrir næsta tímabil, og er Snerpa þar með kominn í hóp fjölmargra fyrirtækja og einstaklinga sem ætla að styðja við bakið á deildinni í vetur.

 

Í kjölfar samstarfsins var vefur körfuknattleiksdeildarinnar tekinn í gegn og er útkoman vægast sagt stórglæsileg. Vefurinn keyrir á Snerpil vefumsjónarkerfinu sem Snerpa býður uppá, og hefur þá stórgóðu kosti að vera mjög öflugt en jafnframt einstaklega einfalt í notkun.

 

Eins og margir vita leikur meistaraflokkur UMFB í 2. deild Íslandsmótsins í körfuknattleik, þar sem þeir vöktu athygli fyrir góða frammistöðu síðasta vetur, auk þess sem félagið heldur úti öflugu yngri flokka starfi í samstarfi við KFÍ.

Nú í byrjun júlí lauk Snerpa uppsetningu á nýjum DSL-búnaði í símstöðvunum á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri. Með þessu verða í boði á þessum stöðum enn burðarmeiri ADSL og VDSL sambönd en áður hafa verið í boði. Þannig eykst hámarkshraði á ADSL úr 8 Mbit í 16 Mbit og einnig verða í boði VDSL-sambönd sem gefa kost á mun meiri afköstum frá notanda sem hentar sérstaklega fyrirtækjum og stofnunum á þessum stöðum. Einnig býðst nú aðgangur að ódýrari og hraðari ADSL-tengingum en áður hafa verið í boði á þessum stöðum.

Í tengslum við uppsetninguna var endurnýjaður samningur við Ísafjarðarbæ um sambönd bæjarins. Voru sett upp ný VDSL-sambönd í  grunn- og leikskóla, hafnarvogir og sundlaugar á þessum stöðum. Þannig allt að fimmfaldast afkastageta og eru t.d. grunnskólar Ísafjarðarbæjar nú með 10 Mbit sambönd bæði að og frá og hægt er að senda myndir í góðri upplausn frá vefmyndavélum sem eru til eftirlits á hafnarsvæðum.

Ragnar þjónustustjóri Snerpu segir nýju netsamböndin vera spennandi tækifæri og virkilega gaman hvað Ísafjarðarbær sé duglegur að nýta sér þjónustu í heimabyggð.

Við sama tækifæri þakkaði Daníel bæjarstjóri starfsmönnum Snerpu fyrir smíði á nýrri vefsíðu Ísafjarðarbæjar sem tekin var í notkun fyrir stuttu. Vefsíðan er byggð á vefumsjónarkerfinu Snerpli sem nær öll sveitarfélög á Vestfjörðum eru að nota í dag.

Meðfylgjandi mynd var tekin þegar samningurinn var handsalaður á svölum Stjórnsýsluhússins í dag, 15. júlí. Frá vinstri: Valtýr Gíslason kerfisstjóri hjá Ísafjarðarbæ, Daníel Jakobsson bæjarstjóri, Ragnar Árnason þjónustustjóri Snerpu og Björn Davíðsson þróunarstjóri Snerpu.
Samúel Samúelsson, formaður BÍ/Bolungarvíkur, og Sturla Stígsson hjá Snerpu handsala samninginn.
Samúel Samúelsson, formaður BÍ/Bolungarvíkur, og Sturla Stígsson hjá Snerpu handsala samninginn.
Knattspyrnufélagið BÍ/Bolungarvík og Snerpa hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára og er Snerpa þá kominn í hóp fjölmargra fyrirtækja sem ætla að taka slaginn með liðinu næstu árin. Í kjölfar samstarfsins var vefur félagsins tekinn í gegn og má sjá útkomuna hér.

Eins og margir vita spilar BÍ/Bolungarvík í 1. deildinni undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar og hafa náð góðum árangri í ár, en liðið situr í efri hluta deildarinnar og sló auk þess út Íslandsmeistara Breiðabliks út úr bikarnum fyrir stuttu eins og frægt er orðið. 
Fyrri síða
1
234567161718Næsta síða
Síða 1 af 18
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00