A A A
Vegna veirufaraldurs sem braust út í gær og stendur enn yfir, þá standa yfir truflanir á póstsamskiptum hjá mörgum af stærri netþjónustum landsins og líklega erlendis einnig. Þetta er vegna þess gífurlega álags sem veirufaraldurinn veldur.



Notendur hjá Snerpu verða þó ekki fyrir þessum truflunum nema þeir séu að senda eða móttaka póst frá þeim netþjónustum sem ekki ráða við hina auknu umferð. Síminn Internet, Margmiðlun, Hringiðan og fleiri hafa tilkynnt um slíkar truflanir hjá sér og má því búast við truflunum á samskiptum við þá sem skipta við þessar netþjónustur. Sem dæmi um álagið, þá hefur magn pósts í umferð vegna þessa meira en tvöfaldast sl. sólarhring.



Um 70% alls pósts sem tekið er við þegar þetta er skrifað er smitaður af orminum Sobig.F sem m.a. falsar netfang sendanda, þannig að tilkynningar sem berast til notenda um að hann hafi verið hreinsaður inniheldur ekki rétt sendandanetfang....
Meira
Skæður tölvuormur sem gengur undir nafninu W32/Msblast.A en einnig þekktur sem Blaster eða LoveSan hefur verið að sýkja tölvur um allan heim.

Plástur og leiðbeiningar má finna hér. Einnig er hér að finna forrit til að hreinsa tölvuna af þessum ormi. Ráðlagt er að ná í báðar þessar skrár, aftengja svo tölvuna af netinu, keyra svo fyrst hreinsiforritið og svo plásturinn....
Meira
Ný vefverslun með HP fartölvur og prentara hefur litið dagsins ljós.

Kíkið á http://www.fartolvur.is og veljið ykkur fartölvu við hæfi....
Meira
Vegna töluvert aukins magns af ruslpósti undanfarið höfum við ákveðið að herða ruslpóstvarnir okkar verulega. Hingað til hefur verið stefnan að leyfa skeyti frekar að sleppa í gegn til notenda ef einhver vafi leikur á því hvort það er ruslpóstur, heldur en að eiga á hættu að hindra saklausan póst. Mjög erfitt er að þræða þessa línu en reyna á að halda þessarri stefnu til hins ítrasta.



Við bættum því við auknum vörnum í dag, 22. júlí. Við vonumst til þess að þetta leiði til þess að ruslpóstur minnki enn frekar, en biðjum notendur að láta okkur vita ef þeir hafa grun um að póstur til þeirra sé hindraður. Við teljum vera litlar líkur á þessu, auk þess sem sendandi fær ávallt senda villutilkynningu þegar pósti er hafnað. Samt sem áður er rétt að fylgjast sérstaklega með þessu þegar varnir eru hertar....
Meira
Proxyþjónn er þjónusta sem sér um að sækja vefsíður fyrir notendur út á Netið. Þetta getur sparað mikinn tíma og aukið afköst á Netinu. Sjá nánar hér.



Nú er lokið gerð sundurliðunarforrits fyrir magnmælingar á proxyþjóni. Þetta þýðir að nú er hægt að flokka frá innanlandsumferð á proxyþjóni. Vinnu við prófun og samanburð lauk 16. júní en gögn voru unnin frá 1. júní, þannig að magnmæling einstakra notenda sem hafa greitt fyrir ómælda innanlandsumferð er nú einnig framkvæmd á proxyþjóni.



Það hefur ekki verið framkvæmanlegt hingað til að "mæla burt" innanlandsnotkun í proxyþjónustu hjá netþjónustum á Íslandi. Snerpa hefur haft notkun á proxyserver valfrjálsa fyrir ADSL-notendur hingað til en aðrar netþjónustur hafa neyðst til að loka fyrir aðgang sinna notenda að proxyþjóni þar sem mælingakerfi þeirra réðu ekki við slíkar mælingar.



Snerpa er fyrsta netþjónustan á landinu, sem býður notendum með ómælda innanlandsumferð að nota proxyþjón. Þetta er gert með sérsmíðuðu magnmælingakerfi Snerpu, sem er einstaklega hraðvirkt og gefur m.a. kost á uppfærslum á mælingagögnum oft á dag en flestar netþjónustur geta einungis uppfært gögn notenda einu sinni á dag. Notkunarmælingar hjá Snerpu eru nú uppfærðar á klukkustundar fresti.



Þá viljum við einnig hvetja notendur með ADSL- og örbylgjutengingar til að kynna sér nýtt einingaverð á umframumferð í gjaldskrá okkar, en helsta nýmælið er að örbylgjunotendur sem kaupa 1 GB tengingar og stærri, greiða nú einungis kr. 2,49 fyrir hvert umfram MB en verðið var kr. 4,- fyrir 1. júní sl....
Meira
Frá 1. júní nk. mun umferð innanlands í gegnum örbylgjukerfi Snerpu verða gjaldfrí. Verð fyrir þjónustuna verður óbreytt en miðast s.s. nú eingöngu við það niðurhal sem ekki er frá innlendum aðilum.



Í þessu sambandi er vakin athygli á að ekki er hægt að vinsa frá innanlandsumferð í umferðarmælingu í gegnum proxyþjón. Þeim sem nota mikið af innanlandsumferð í gegn um proxyþjón er því ráðlagt að aftengja proxystillingu hjá sér eftir mánaðamótin. Að sjálfsögðu munu örbylgjunotendur þó geta notað proxyþjón áfram ef þeim hentar, eins og er í ADSL....
Meira
Þann 24. maí sl. sendi skipverji á togaranum Málmey skeyti nr. 100.000 í INmobil póstkerfinu. INmobil er samstarfsverkefni Snerpu og Radiomiðunar og með því er hægt að senda póst frá skipum og í land með Iridium gerfihnattakerfinu. Alls eru nú yfir 40 skip með INmobil póstkerfið um borð og í þeim eru virk um 1000 netföng hjá skipverjum. Sala á kerfinu hefur tekið mikinn kipp undanfarið og hefur kerfið verið tekið um borð í á annan tug skipa frá sl. áramótum.

Snerpa sendi nýverið frá sér nýja útgáfu af kerfinu, útgáfu 1.6, sem er aðlöguð að nýjustu útgáfum af Internet Explorer og sett hefur verið upp í öryggisgalla sem þar komu fram. Hægt er að fá uppfærslur hjá bæði Radiomiðun og Snerpu....
Meira
Notendur á örbylgjusambandi sem skoða notkun sína eftir 1. júní taka eflaust eftir að innanlandsumferð er ekki sértalin á notkunaryfirliti enn. Þetta er vegna þess að ekki er lokið uppgjöri vegna umframumferðar í maí.



Í stað þess að færa alla notendur á örbylgju á ný vörunúmer, þar sem innanlandsumferð er tekin frá, breytum við skilgreiningunni á núverandi vörunúmerum. Þetta hefur einnig þau áhrif að þegar við breytum skilgreiningum á vörunúmerum, sjá notendur breytingar aftur í tímann, þ.e. innanlandsumferð sést sem frí umferð frá því fyrir 1. júní. Því ber ekki að taka sem afturvirkum breytingum, heldur er skýringin sú að innanlandsumferð hefur ávallt verið talin en sést ekki nema viðkomandi vörunúmer sé skilgreint með fría innanlandsumferð.



Athugið einnig að greining í proxyserver er hafin, þannig að innanlandsumferð sem tekin er í gegn um proxy er tekin frá. Reiknað er með að umferðaruppgjör fyrir örbylgjunotendur sýni innanlandsumferð sem fríumferð eftir 10. júní nk.



Ath. að ekki skal taka proxystillingu af, enda er það nú óþarfi....
Meira
Tölvuþjónustufyrirtækin Netheimar og Snerpa hafa gert samkomulag um aðgang Netheima að aðstöðu í vélasal Snerpu. Snerpa mun einnig leggja Netheimum til bandbreiðar tengingar fyrir vefþjóna á vegum Netheima. Með þessu munu Netheimar jafnframt tryggja sér og viðskiptavinum sínum aðgang að tvöföldu útlandasambandi Snerpu. Fyrst og fremst munu Netheimar nýta sér þessa aðstöðu til að bjóða viðskiptavinum sínum hýsingu á vefjum og gagnagrunnum undir Windows (.NET, ASP og MS SQL) umhverfinu en Netheimar sérhæfa sig m.a. í hönnun og rekstri á þessu sviði.



Netheimar munu einnig hafa aðgang að nafnaþjónum og annarri þjónustu hjá Snerpu sem gefur kost á að veita heildarlausnir fyrir viðskiptavini. Þá fylgir einnig fullur aðgangur að varaafli á búnað og varasambönd á sama hátt og fyrir viðskiptavini Snerpu....
Meira
INfilter vefgæslan verður til sýnis á Cebit upplýsingatæknisýningunni í Hannover í Þýskalandi sem haldin verður 12.-19. mars 2003. Þetta er í annað skiptið hvað CeBIT varðar, en INfilter var fyrst kynnt á CeBIT árið 2002.



Fulltrúar frá Snerpu, sem hannar og selur INfilter þjónustuna verða til ráðgjafar og upplýsingar í Bás B02 í Höll 5 á meðan á sýningunni stendur....
Meira
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00