A A A
Tölvuþjónustufyrirtækin Netheimar og Snerpa hafa gert samkomulag um aðgang Netheima að aðstöðu í vélasal Snerpu. Snerpa mun einnig leggja Netheimum til bandbreiðar tengingar fyrir vefþjóna á vegum Netheima. Með þessu munu Netheimar jafnframt tryggja sér og viðskiptavinum sínum aðgang að tvöföldu útlandasambandi Snerpu. Fyrst og fremst munu Netheimar nýta sér þessa aðstöðu til að bjóða viðskiptavinum sínum hýsingu á vefjum og gagnagrunnum undir Windows (.NET, ASP og MS SQL) umhverfinu en Netheimar sérhæfa sig m.a. í hönnun og rekstri á þessu sviði.



Netheimar munu einnig hafa aðgang að nafnaþjónum og annarri þjónustu hjá Snerpu sem gefur kost á að veita heildarlausnir fyrir viðskiptavini. Þá fylgir einnig fullur aðgangur að varaafli á búnað og varasambönd á sama hátt og fyrir viðskiptavini Snerpu....
Meira
INfilter vefgæslan verður til sýnis á Cebit upplýsingatæknisýningunni í Hannover í Þýskalandi sem haldin verður 12.-19. mars 2003. Þetta er í annað skiptið hvað CeBIT varðar, en INfilter var fyrst kynnt á CeBIT árið 2002.



Fulltrúar frá Snerpu, sem hannar og selur INfilter þjónustuna verða til ráðgjafar og upplýsingar í Bás B02 í Höll 5 á meðan á sýningunni stendur....
Meira
Snerpa hefur nú opnað nýja 10 Mbps tengingu til Tæknigarðs í Reykjavík og tengist þar nú við skiptistöð innanlandsumferðar (www.rix.is). Fyrir er Snerpa með 10 Mbps samband við útlandagátt Landssímans og 10 Mbps rás inn á ADSL-kerfi Landssímans. Þessi tenging eykur tiltæka bandvídd um 10 Mbps til viðbótar og gefur jafnframt kost á auknu rekstraröryggi með því að hægt er að vera með virk útlandasambönd um bæði Landssímann og Íslandssíma samtímis. Snerpa er önnur netþjónustan á Íslandi til að setja upp tvö óháð útlandasambönd sem eru virk samtímis, annað við TeleGlobe og hitt við UUnet. Sambönd Snerpu við umheiminn eru með því öflugasta sem gerist og tiltæk bandvídd á hvern viðskiptavin er nú verulega meiri en gengur og gerist....
Meira
- nokkrir liðir standa þó í stað



Stjórn Snerpu hefur ákveðið að þann 1. febrúar nk. taki gildi ný gjaldskrá fyrir þjónustu félagsins þar sem flestir þjónustuliðir hækka um 8,5%. Þetta er í fyrsta skipti sem gripið er til slíkrar hækkunar en ástæðan er fyrst og fremst margvíslegar kostnaðarhækkanir síðastliðna mánuði. Í gegnum tíðina hefur gjaldskrá vegna netþjónustu lækkað nokkuð, sérstaklega hvað varðar stærri tengingar og sítengingar en eins og áður segir er þetta í fyrsta skipti sem til hækkunar kemur....
Meira
Frá 22. nóvember til 24.desember



Nú er tíminn til að skipta



Fáðu þér Internettengingu hjá Snerpu fyrir jól og þá færðu tvo mánuði fría

Einnig færðu frítt með:



Veiruhreinsun á tölvupósti

Ruslpóstsíu

Klámsíu

2 mánuði fría á it.is heimasíðusvæðinu



Ekkert stofngjald á ADSL hjá Símanum
...
Meira
Frá 18. október til og með 25. október verður sprengivika í ADSL.

Í sprengiviku er nýjum ADSL notendum boðið að skrá sig í ADSL 512 en borga fyrir ADSL 256 í þrjá mánuði. Að þeim tíma loknum verður innheimt
mánaðargjald fyrir ADSL 512.

Munurinn á ADSL 256 og 512 er fólginn í hraðamun sem getur verið allt að tvöfaldur. Aukinn hraði hentar til dæmis mjög vel fyrir þá sem spila tölvuleiki á netinu.
Mánaðarlegt áskriftargjald ADSL hjá Snerpu stendur óbreytt þó hraði sé aukinn.

Athugið að þetta tilboð gildir aðeins ef skráning er gerð innan tilgreinds
tíma.
Þann 10. október nk. standa ráðherrar upplýsingatæknimála fyrir fundi um stefnu í upplýsingatæknimálum í Osló. Ráðuneyti hvers lands mun hvert fyrir sig taka fyrir eitt umræðu efni en einnig taka til máls sérfræðingar af sama þjóðerni. Björn Davíðsson hjá Snerpu mun, auk samgönguráðherra Sturlu Böðvarssonar, flytja stutt erindi á fundinum um þróun gagnaflutninga í dreifbýli. Yfirskrift erindis ráðherra mun verða um sýn stjórnvalda á verðlagningu gagnaflutninga....
Meira
10.10.2002

Tímaritið PC World valdi HP DeskJet 5550 sem besta kostinn af bleksprautuprenturum fyrir heimilismarkað og HP DeskJet 3820 sem annað besta val. Á heimasíðu PC World segir um DeskJet 5550 prentarann: „Prentar mjög skýrar, hreinar og nákvæmar myndir á þar til gerðan myndapappír. Einn af þeim albestu sem við höfum séð."



Nánari umfjöllun um prentarana er að finna á vefslóðinni hér að neðan.
...
Meira
Frábærir prentarar á frábæru verði !...
Meira
Netruslpóstur, oft nefndur spam, hefur færst mikið í aukana undanfarið ár en þó aldrei meira en sl. tvo mánuði og er nú meira en helmingur af öllum sendum pósti á Netinu eða rúmlega 62%. Snerpa hefur um nokkuð skeið haldið saman tölum um hlutfall pósts sem er hafnað vélrænt sem spammi en ýmsar sjálfvirkar aðferðir eru tiltækar í því skyni. Snerpa hefur lagt sérstaka áherslu á að verja notendur sína fyrir spammi og bendir flest til þess að sú stefna hafi gefist vel. Notendur Snerpu fá einungis sárafá spömm en svo sem sjá má á meðfylgjandi mynd hefur spamsendingum fjölgað gríðarlega upp á síðkastið. Aldrei er þó hægt að koma algerlega í veg fyrir að eitt og eitt spam sleppi í gegn en við álítum betra að það komi fyrir en hitt að hafnað sé pósti sem ekki flokkast sem spam. Núverandi síunaraðferðir hafa gefist vel og einu tilfellin þar sem pósti hefur verið hafnað án þess að vera ruslpóstur, eru þau þar sem pósthús sendanda hefur verið brotið upp af tölvuþrjótum eða rangt uppsett af netþjónustu sendandans....
Meira
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00