A A A
ADSL-áskrift með 1 GB erlent niðurhal og fastri IP-tölu kostar kr. 3.100,- á mánuði og þurfa þeir áskrifendur sem vilja breyta áskrift sinni að óska sérstaklega eftir því, en þeir sem kjósa að halda áfram í núverandi fyrirkomulagi þar sem áskriftargjaldið er kr. 2.900,- geta haldið áfram með fyrri kjör. Framvegis verður einungis í boði nýi áskriftarflokkurinn en sá eldri gildir fyrir áskrifendur sem vilja halda þeirri áskrift.
...
Meira
Nú fara skólar að hefjast og eru nemendur í síauknum mæli að fá sér ferðatölvur til þess að nota í skóla eða tölvu til að vinna við heima, þar sem að segja má að tölvan sé orðin "staðalbúnaður" í námi. Við hjá Snerpu bregðumst að sjálfsögðu við þessu og bjóðum nú tölvur/fartölvur á sérstöku skólatilboði.



Með því að smella hér á ,,meira" hnappinn fáið þið að sjá það sem í boði er á þessu tilboði.
...
Meira
Snerpa ehf. hefur hafið sölu á heimasíðuplássi undir léninu it.is. Þetta er einstaklega góður, einfaldur og ódýr kostur fyrir þá sem vilja halda úti heimasíðu. Uppsetning er leikur einn fyrir alla þá sem vilja kynna sig, vörur sínar eða þjónustu. Helstu kostir it.is eru þetta frábæra nafn sem auðvelt er að muna og að þetta er aðgengilegt fyrir hvern sem er bæði hvað viðkemur verði og uppsetningu, þar sem að síðan er á stöðluðu formi. Internetið er orðið einn helsti miðill almennings þegar sótst er eftir upplýsingum um vörur og þjónustu, en þjónustuaðilar veigra sér oft við kostnaðinum og vinnunni sem fylgir heimasíðu á eigin léni. Hér er kominn kostur sem að vel er þess virði að skoða! Við fögnum it.is og erum stolt af þessari viðbót í flóruna.



Frekar upplýsingar er að finna inn á www.it.is og í síma 520-4000 hjá Snerpu....
Meira
Í gær, 1. ágúst var gengið frá uppsetningu á fastlínusambandi Snerpu til Flateyrar. Flateyri er fimmti staðurinn utan Ísafjarðar þar sem Snerpa setur upp hnútpunkt en fyrir eru tengingar í Bolungarvík, Suðureyri, Súðavík og á Hólmavík. Nú þegar hefur fyrsti viðskiptavinurinn verið tengdur við hnútpunktinn en síðar í mánuðinum verður settur upp örbylgjubúnaður fyrir þráðlaust Internet sem þjóna mun íbúum Flateyrar með sítengt Internet.





Þráðlaust net Snerpu er fyllilega sambærilegur kostur við ADSL. Mánaðargjald er svipað en stofnkostnaður getur orðið hærri þar sem notendur þurfa í sumum tilfellum að koma fyrir loftnetsgreiðu á húsþaki fyrir móttöku....
Meira
Snerpa hefur nú gert breytingar á gjaldskrá sinni fyrir ADSL-sambönd. Gjaldskráin gildir einnig fyrir ISDNplús og Internet um breiðband. ISDNplús er fáanlegt um allt land en IuB er eingöngu fáanlegt á afmörkuðum svæðum í Reykjavík....
Meira
Snerpa er nú að taka í notkun nýtt hugbúnaðarkerfi fyrir mælingu á sítengisamböndum. Hingað til hafa ADSL-notendur ekki haft aðgang að mælingum á daglegri notkun sinni þar sem eldra kerfið sem við notuðum var mjög óhandhægt og þurfti jafnan að yfirfara mælingar úr því fyrir hver mánaðamót. Nú höfum við hinsvegar, vegna mikillar aukningar undanfarið, lokið við uppsetningu á nýju og betra magnmælingakerfi sem mun setja fram daglega á vefsíðum, upplýsingar fyrir notendur um hvað þeir sé búnir að nota af úthlutuðu gagnamagni....
Meira
Snerpa býður nú upp á nýja þjónustu sem kallast ISDN+. Þessi þjónusta er lághraða sítenging sem er fáanleg um allt land, og er álitlegur valkostur fyrir þá sem ekki eiga kost á ADSL tengingu eða þar sem notkun er stöðug og símakostnaður þ.a.l. hár. ISDN+ tengingin notar sérstaka ISDN+ línu sem er fáanleg hjá Landssímanum og kostar línutengingin kr. 590,- á mánuði óháð því hver notkun á línunni er. Fyrir ISDN+ línuna er því greitt einungis þetta gjald og fæst þá 9,6 KB/s samband án mínútugjalds á svokallaðri D-rás sem er þriðja rásin á ISDN-línu. Hjá Símanum fæst síðan sérstakur ,,Dialer" (hringi) hugbúnaður fyrir ISDN+ en í honum er hægt að stilla hvenær B-rásirnar tvær (64 KB/s) eru nýttar, hvort þær opnast sjálfkrafa þegar þörf er á eða hvort spurningargluggi kemur upp ef umferð gefur tilefni til....
Meira
Ákveðinn hefur verið sumar opnunartími verslunar okkar og verður hann sem hér segir....
Meira
- nauðsynlegt að gæta sín á góðum tilboðum.



Ef eitthvað hljómar of vel til að vera satt, þá er það yfirleitt ekki satt. Þetta á svo sannarlega við um nýjasta vinninginn á Netinu, óumbeðnum fjöldapósti sem sendur er frá fríþjónustunetföngum eins og lycos.com og yahoo.com netföngum um póstmiðlara með öryggisvandamál....
Meira
Samband Snerpu við Landssímann lá niðri frá 18:40 til 20:21 í kvöld vegna bilunar í IP neti Landssímans....
Meira
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00