A A A
Snerpa hefur nú tekið í notkun nýja rás við Iridium gervihnattakerfið þannig að fleiri skip geta nú verið tengd Snerpu samtímis. Í síðasta mánuði fóru um 3.300 tölvuskeyti til og frá skipum sem tengd eru um INmobil samskiptakerfi Snerpu en notendur eru nú á fjórða hundrað talsins. Snerpa hefur m.a. sérhæft sig í þjónustu til skipa á hafi úti og býður aðgang um bæði GSM- NMT- og gervihnattakerfin Iridium, Inmarsat M og Mini-M ásamt EMsat inn á sérstaka póstmiðlara, bæði eigin búnað sem er INmobil samskiptagáttin og einnig sér Snerpa um að reka MarStar samskiptagátt Netverks. Iridium-tenging við Snerpu er nú hagstæðasta gervihnattatengingin, þar sem Snerpa tekur við tengingum beint um Iridium gervihnettina (innan kerfis). Alls eru nú rúmlega fimmtíu skip tengd skipaþjónustu Snerpu. Snerpa hefur sl. tvö ár veitt skipaþjónustuna í samstarfi við Radiomiðun hf. sem sér um markaðssetningu á þjónustunni og hefur samstarfið gengið með eindæmum vel....
Meira
Truflun varð í vefþjóni Snerpu í morgun. Eftir nokkra leit fannst villa í vefforriti á vef bb.is. Villan hefur verið lagfærð til bráðabirgða. Haft var samband við vefforritara bb.is og hann látinn vita....
Meira
Snerpa hefur í gegn um tíðina lagt sérstaka áherslu á að vernda notendur gegn tölvuruslpósti. Tölvuruslpóstur er vaxandi vandamál á Netinu og er nú svo komið að meira en fimmtungur alls tölvupósts sem sendur er á Netinu er óumbeðinn fjöldapóstur frá fólki sem vill auglýsa ,,ókeypis".

Vandamál móttakenda póstsins er að það sem er ókeypis fyrir sendandann greiðir notandinn, þar sem aukin umferð á netsamböndum eykur kostnað og tíminn sem tekur að sækja auglýsingapóst eykst og veldur einnig kostnaði. Á grafinu sem fylgir má sjá mikla aukningu á hlutfalli ruslpósts sem er hafnað. Þrátt fyrir að þetta mikið sé stöðvað sleppur þó alltaf eitthvað í gegn en við vinnum að því að halda því sem sleppur í gegn í lágmarki....
Meira
Í kjölfar rafmagnstruflana í stjórnsýsluhúsinu bilaði tölva sem stjórnar netumferð í Stjórnsýsluhúsinu í morgun og skemmdist í henni diskur. Uppsetning tölvunnar er mjög flókin og því tekur uppsetning nýrrar vélar töluverðan tíma. Ákveðið var að setja upp aðra vél til bráðabirgða og má reikna með að hún verði tilbúin fyrir kvöldið. Bilunin hefur áhrif á alla notendur á víðneti Ísafjarðarbæjar og í stjórnsýsluhúsinu....
Meira
Fræðslumiðstöð Vestfjarða sendi frá sér bækling þar sem stóð að veffangið þeirra væri http://www.snerpa.is en hið rétt er auðvitað http://www.snerpa.is/frmst eða http://www.frmst.is...
Meira
Samband Snerpu við umheiminn datt út milli 8:20 og 8:40 í morgun, samkvæmt upplýsingum frá Gagnaflutningsdeild Landssímans var það vegna bilunar í swiss í IP netinu....
Meira
GSM fylgihlutir
...
Meira
Móðurborð Soyo SY-KVEM PRO mini


m.innbyggðu skjákorti, hljóðkorti og netkorti


CPU AMD Duron 900MHz og vifta





...
Meira
Snerpa hefur hafið sölu á Sony skjám og skjávörpum

...
Meira
Snerpa ehf. hefur hafið sölu á


kennsluforritum fyrir Windows-Word-Excel


Forritin eru framleidd af fjarkennsla.is
...
Meira
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00