A A A
Undanfarin ár hafa komið upp tilvik hjá Internetþjónustum hérlendis, þar sem þurft hefur að rekja misnotkun og hafa þá jafnan komið upp vafatilfelli um hvort afhenda megi upplýsingar sem skráðar eru í annála til þriðja aðila, t.d. lögreglu. Þar sem ekki er nánar kveðið á um meðferð upplýsinga í lögum, t.d. hversu lengu þær skuli geymdar hefur oft skapast vandi vegna þessa. Netþjónustur hafa jafnan túlkað ákvæði um afhendingu upplýsinga þröngt þar sem umbeðnar upplýsingar eru persónugreinanlegar og hefur þá þurft dómsúrskurð í þeim tilfellum....
Meira
Vegna flutnings á búnaði í vélasal og undirbúnings fyrir flutning á ljósleiðaraheimtaug Snerpu verða nokkrar truflanir á þjónustu aðfararnótt fimmtudags. Breytt verður uppsetningu á sk. miðjurouterum sem öll umferð fer um og á meðan því stendur verða öll sambönd meira og minna niðri frá því kl. 02:00 og fram eftir nóttu. Reiknað er með að aðalsambönd verði komin upp ekki seinna en kl. 04:00 og fyrirtækjatengingar innanbæjar ættu að vera komnar upp fyrir kl. 05:00...
Meira
Vefmyndavélin hefur verið flutt....
Meira
Undanfarna daga hafa verið að ágerast truflanir í netsamböndum þannig að ýmist verða sumir vefir mjög hægvirkir eða jafnvel að alls ekkert samband næst við þá. Þessar truflanir hafa haft áhrif á alla þá sem nota netsambönd sem fara um net Landssímans og vara yfirleitt í 15-20 mínútur í einu. Í gærkvöldi (16. jan.) komu upp endurtekin tilfelli af þessum truflunum um og eftir miðnættið, einnig hafa þær verið að koma fram um miðjan dag í gær og fyrradag....
Meira
Snerpa hefur nú ráðið tímabundið starfsmann sérstaklega til þess að sjá um vinnu við uppfærslur og viðhald á INfilter vefgæsluhugbúnaðinum. INfilter vefgæslan er hönnuð og skrifuð hjá Snerpu og er Snerpa fyrsta netþjónustan á landinu sem býður notendum sínum aðgang að vefgæslu. Notendur þurfa ekki að setja upp neinn hugbúnað á eigin tölvu, einungis að fara á vefslóðina http://val.snerpa.is/ og merkja við þá innihaldsflokka á vefnum sem þeir vilja hindra aðgang að á heimili eða vinnustað sínum. Vefgæslan er í boði á þennan hátt á öllum upphringitengingum og ADSL-samböndum en óska þarf sérstaklega eftir stillingum á fastlínu- og SDSL-samböndum....
Meira
Það er venja að litið sé til baka um farinn veg um áramót og er þessu fréttakorni ætlað að gera grein fyrir helstu viðburðum ársins í rekstrinum.


Á árinu 2001 fjölgaði virkum netföngum í almennri netþjónustu um rúm 20% en auk þess bættist við töluverður notendafjöldi í skipaþjónustunni INmobil. Einnig varð velta ársins aðeins meiri en væntingar stóðu til og ýmsar framkvæmdir í gangi, m.a. stækkun á Internetsambandi úr 2 Mbit/s í 12 Mbit/s og bygging nýs vélasals.



Með nýjum ATM-búnaði sem fjárfest var í skömmu fyrir síðustu áramót opnuðust nýir valkostir, m.a. sá að í upphafi ársins varð tæknilega hægt að taka við m.a. heillri sjónvarpsdagskrá og hóf Snerpa jafnframt umsjón með útsendingum Skjás eins á Ísafirði. Aðferðin sem notuð er við flutning sendingarinnar er svokölluð MPEG-2 þjöppun sem gerir að verkum að útsendingarmerkið sem venjulega tekur 45 Mbit/s pláss í flutningi er þjappað niður í um 4 Mbit/s eða í innan við tíunda part. Þetta hafði ekki verið reynt hér á landi áður og bar útsendingin blæ af því fyrstu vikurnar á meðan verið var að fullprófa og fínstilla hugbúnað því að oft fylgdi hljóð ekki í takt við mynd en rættist síðan úr og hafa Ísfirðingar verið meðal fárra staða á landsbyggðinni sem hafa notið útsendinga Skjás eins fyrir vikið....
Meira
Jæja þá er komið að því, Snerpa hefur bæst í þann hóp fyrirtækja sem hefur opið í hádeginu. Frá og með 1. desember síðastliðnum þá fór Snerpa að hafa opið í hádeginu alla virka daga....
Meira
Tölvusýning á Hólmavík...
Meira
Í dag er verið að steypa í Snerpu. Undanfarið hefur verið í smíðum sérstakur eldtraustur vélasalur undir tölvubúnaðinn sem notaður er til að veita Internetþjónustu. Verkið var boðið út í byrjun nóvember sl. og byggingaverktakarnir Eiríkur og Einar Valur tóku að sér smíðina sem felst í því að eitt horn hússins að Mánagötu 6 var bókstaflega rifið af húsinu og síðan sett upp steypumót utan um vélasalinn verðandi. Þegar steypuvinnu er lokið verður síðan byggt utan um húsið á nýjan leik og verður ytra útlit þess því óbreytt. Reiknað er með að verkinu ljúki fyrir jól og verður þá hafist handa við að koma þar fyrir tækjabúnaðinum....
Meira
Nýverið lauk forritunardeild Snerpu við að setja upp nýja vefverslun. Þessi verslun er á slóðinni www.tonaflod.is og er hún byggð á INshop vefverslunarkerfi Snerpu....
Meira
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00