Nýtt 22.des: MPEG breytasettið er nú uppsett hjá tæknimönnum í Reykjavík og verið er að prófa og stilla sendiaðferðir til að tryggja sem mest gæði í útsendingu. Þar sem þetta er fyrsta eintakið á landinu eins og áður hefur komið fram, munu þessar prófanir því miður taka fáeina daga þannig að útséð virðist um að takist að hefja sendingar fyrir jól, þó að allt annað sé nú tilbúið. Allt kapp er hinsvegar lagt á að geta náð að hefja útsendingar áður en 21. öldin gengur í garð.
Nýtt 20. des: Landssíminn hefur nú lokið við þær breytingar á ATM-netinu sem þarf til að hægt sé að flytja dagskrárrás Skjás Eins hingað vestur. Von er á síðasta hluta búnaðar SkjáVarpsins í dag en það er sk. MPEG breytasett. Þegar það birtist er hægt að fara að byrja prófanir.
15. des: Þá er loks farið að sjá í að útsendingar hefjist á sjónvarpsstöðinni Skjár Einn á Ísafirði. Við höfum nú fengið upplýsingar frá Landssímanum um að búnaður sem notaður er til stækkunar á ATM-sambandinu suður sé allur kominn á sinn stað. Starfsmenn Gagnalausna hjá Landssímanum eiga hinsvegar eftir að ljúka við ýmsar breytingar á hugbúnaði til þess að koma þessarri stækkun í gagnið en reiknað er með því að þeirri vinnu geti verið lokið á þriðjudag í næstu viku. Á þriðjudag má reikna með truflunum á Internetsambandi Snerpu í stutta stund vegna þessa, þar sem Internetumferðin er flutt um sama búnað....
Meira