A A A
Björn Davíðsson, þróunarstjóri Snerpu
Björn Davíðsson, þróunarstjóri Snerpu
Vírusvarnir mega sín lítils þegar notendur velja sjálfir að virkja forrit með því að smella á hlekki á netinu. Björn Davíðsson, þróunarstjóri hjá tölvuþjónustunni Snerpu á Ísafirði, segir „almenna skynsemi“ seint verða ofmetna sem forvörn á internetinu. Fólk sem notar samskiptavefinn Facebook kann að hafa orðið vart við nokkra aukningu á því að jafnvel grandvörustu menn sendi frá sér það sem virðist vera tenglar í vafasamt efni á vefnum. Full ástæða er til að sýna aðgát í þessum efnum, jafnvel þótt einungis virðist vísað á saklaust grín. Í samtali við Fréttablaðið segir Björn algengt að fólk þurfi að setja upp kerfisviðbætur til að skoða efni á netinu, svo sem Microsoft Silverlight, Flash eða Shockwave. Mikilvægt sé hins vegar að sýna aðgát þegar fólk er beðið að samþykkja forrit sem það ekki þekkir. „Við köllum þetta trójuhesta, en það eru forrit og forritsbútar sem virðast vera annað en þeir eru,“ segir hann. 

Fjölmargar útgáfur eru af slíkum svikabrögðum á netinu, en flestar eiga þær sammerkt að fiskað er eftir upplýsingum úr tölvu notandans, oftar en ekki til þess að senda fleirum óværuna. „Og stundum kemur fyrir að notandinn samþykkir notkunina, jafnvel án þess að kynna sér skilmála sem upp koma. Þar gæti eins staðið að forritið ætli að nýta sér upplýsingar úr tölvu notandans,“ segir Björn, þessi leikur hefur verið leikinn á Facebook, þar sem fólk lætur plata sig gegn loforðinu um að fá að sjá myndir, myndskeið eða brandara. 

Frá þessu var greint á Vísir.is
www.aldrei.is
www.aldrei.is
Nýr vefur rokkhátíðar alþýðunnar Aldrei fór ég suður er kominn í loftið. Síðan er hönnuð af snillingnum Ágústi Atlasyni og keyrir á vefumsjónarkerfinu Snerpli frá Snerpu. Á síðunni er að finna ýmsar nýjungar auk þess sem til stendur þar fari fram öflugari fréttaflutningur en á gamla vefnum. Þar er að auki að finna gagnlegar upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar, Ísafjörð, heimabæ hátíðarinnar, og myndir og myndbönd frá fyrri hátíðum. Í nýjum pistli á síðunni segir að Aldrei fór ég suður sé Woodstock Íslendinga. „Með hækkandi sól og straumi aðkomumanna kemur ný hátíð, meiri tónlist, meira stuð og minni fýla. Engin efnahagsleg lægð, díoxín mengun eða kjarnorkuslys á eftir að megna að koma í veg fyrir það að Ísafjörður um páskanna 2011 verður THE pláss til að vera á.“ 

Skoða aldrei.is 
Daníel Jakobsson bæjarstjóri opnar nýju síðuna
Daníel Jakobsson bæjarstjóri opnar nýju síðuna

Nýr vefur Ísafjarðarbæjar hefur litið dagsins ljós. Við hönnun hans var litið til þess að hafa sem greiðast aðgengi að þeim upplýsingum sem notendur þurfa hvað mest á að halda. Þá var forsíða einfölduð og reynt að stytta leiðir í uppbyggingu vefjarins.

 

Síðan er hönnuð af þeim Ágústi Atlasyni og Sturlu Stígssyni, vefhönnuðum hjá Snerpu ehf. á Ísafirði, og efnisuppbygging var í höndum upplýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar. Notast er við vefumsjónarkerfið Snerpil frá Snerpu ehf. Er það mat þeirra sem að vefnum standa að vel hafi tekist til við uppbyggingu, en eins og alltaf má búast við einhverjum byrjunarerfiðleikum. Eru notendur beðnir um að sýna þolinmæði, en láta þó vita á netfangið upplysingafulltrui@isafjordur.is ef eitthvað virkar ekki sem skyldi.

 

Síðan á eftir að taka einhverjum breytingum á næstu vikum og mánuðum eftir því sem þurfa þykir. Verður við þær breytingar reynt að taka mið af þeim ábendingum sem berast.

 

Því miður reyndist ekki mögulegt að birta fundargerðir við opnun síðunnar, en úr því verður ráðið á allra næstu dögum. Í millitíðinni er hægt að biðja um tilteknar fundargerðir á textaformi í gegnum netfangið upplysingafulltrui@isafjordur.is.

Skoða nýja vef Ísafjarðarbæjar 

1 af 2
Snerpa hefur nú hafið sölu á sjónvörpum í samstarfi við Sjónvarpsmiðstöðina og mun vera með frábær tilboð á þeim út desember. Nánar er hægt að lesa um tækin sem við höfum á lager á vörusíðunni okkar en einnig getum við pantað öll tækin sem Sjónvarpsmiðstöðin hefur upp á að bjóða og á sama verði.

Einnig vorum við að fá nýja sendingu af fartölvum og Apple Ipad sem verða á frábæru verði í jólamánuðinum, en nánar má lesa um þær hér.
Síminn hefur nú lokið við að hækka hraða hjá viðskiptavinum Snerpu í ADSL-þjónustu í 12 Mbit. Nú er verið að vinna að þvi að uppfæra verðskrá en í meginatriðum má segja að þjónustuleiðir með línugjaldi breytast allar í 12 Mbit hraða en verðið mun standa í stað, þó verða einhverjar breytingar til hækkunar eða lækkunar á einstökum áskriftarleiðum en það mun verða kynnt fljótlega. Þjónustuleiðin S1 (12 Mbit hraði / 1 GB niðurhal) verður áfram ódýrasta ADSL-þjónustuleið á landinu á 3.185 kr. Þjónustuleiðin S2 (12 Mbit hraði / 10 GB niðurhal) mun væntanlega lækka um 6,5% í 4.375 - Breytingarnar verða kynntar nánar á verðskrársíðum Snerpu á næstu dögum.
Við viljum vekja sérstaklega athygli á því að notendur sem enn kaupa áskrift skv. eldri áskriftarleiðum þar sem innheimt er sérstaklega fyrir línugjald af Símanum að Síminn hefur hækkað línugjald á öllum línum 12 Mbit og minni í 2.990 kr. Það getur því borgað sig fyrir þá viðskiptavini að hafa samband, og breyta í nýja áskriftarleið með inniföldu línugjaldi, með því að senda póst á netfangið sala@snerpa.is
Snerpa hefur undanfarnar vikur verið að störfum í Óshlíðargöngum við lagningu og tengingar á ljósleiðurum. Um er að ræða ljósleiðara sem notaðir eru til að þjónusta jarðgöngin en allir neyðarsímar, stjórn- og eftirlitsbúnaður í göngunum eru tengdir með ljósleiðara. Einnig mun Snerpa á næstu dögum leggja og tengja ljósleiðara fyrir Mílu um göngin en núverandi ljósleiðari til Bolungarvíkur um Óshlíð verður lagður af. Lagningu ljósleiðara fyrir göngin lauk í gær. Áætlað er að tengingum í göngunum ljúki í þessari viku en þá tekur við vinna við tengingar að símstöð í Hnífsdal og lagning á ljósleiðara Mílu í gegnum göngin. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá vinnunni og úr göngunum.
Nokkuð hefur verið fjallað um kæru Vodafone á hendur Símanum og Fjarskiptasjóði að undanförnu. Snerpa vill hér koma á framfæri sinni hlið á málinu - Vodafone er ekki eini aðilinn sem telur sig hafa orðið fyrir tjóni vegna útboðsins.

Verkefni Fjarskiptasjóðs  snérist um að koma á sítengdu Internetsambandi við smærri þéttbýliskjarna, lögbýli í dreifbýli og vinnustaði með heilsársrekstur. Hvað Vestfirði varðar hafði mjög stór hluti dreifbýlis þá þegar sítengingu við Netið sem boðið var af Snerpu, svokallað þráðlaust  (WiFi) net og reyndar einnig í öllum þéttbýliskjörnum á Vestfjörðum sem ekki áttu kost á ADSL-tengingu.

Þegar ljóst var að af þessu útboði yrði, kom einnig fram að þeir staðir sem þegar væru með sítengingu, eins og t.d. WiFi-net Snerpu, ættu einnig möguleika að fá tengingu skv. útboðinu, en einungis ef þjónustuveitendur, Snerpa í þessu tilfelli, ,,gæfu eftir svæðið sitt" þ.e. samþykktu ríkisstyrkt útboð fyrirfram.

Miðað við þær upplýsingar sem kynntar voru af Ríkiskaupum vegna útboðsins í maí 2007 ákvað Snerpa að halda ekki þjónustusvæðum fyrir sig heldur samþykkja útboðið. Var þetta fyrst og fremst gert vegna þess að útboðið gaf tilefni til að ætla að þjónusta skv. því yrði veitt með nýrri og þ.a.l. betri búnaði sem myndi þýða bætta þjónustu fyrir íbúa á svæðinu og einnig vegna þess að skv. útboðsskilmálum yrði veittur sk. opinn aðgangur (heildsöluaðgangur) að þjónustunni sem þýðir að Snerpa gæti haldið áfram að selja sínum viðskiptavinum þjónustu yfir hinn nýja búnað.

Hvað aðgang um ADSL varðar hefur opinn aðgangur verið í boði, en hinsvegar hafa neytendum ítrekað verið veittar villandi upplýsingar þannig að þeir hafa staðið eftir í þeim skilningi að þeir ættu ekki möguleika á að kaupa netþjónustu af öðrum en Símanum. Þegar kvartað hefur verið undan þessari villandi upplýsingagjöf við Símann hefur því jafnan verið borið við að um misskilning hjá sölumönnum væri að ræða og lofað að leiðrétta hann en þó gerist þetta ítrekað.

Opinn aðgangur um 3G dreifikerfið sem reist var í tengslum við útboðið hefur hinsvegar ekki fengist þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og fyrirspurnir þar um. Bæði hefur verið leitað til Símans og Fjarskiptasjóðs um þennan aðgang sem skilyrtur er í útboðsgögnum, síðast 25. júní sl. Síminn virðist hafa lagt á það mikla áherslu að hann verði eina netþjónustan sem býður netþjónustu um 3G kerfið sem byggt var upp með þeirri ríkisaðstoð sem útboðið er óumdeilanlega. Aðilar eins og Snerpa hafa bent á leiðir til að útfæra heildsöluaðganginn tæknilega en Síminn ber fyrir sig að slíkt sé ekki hægt, án þess þó að hrekja ábendingar Snerpu. Fjarskiptasjóður sem rekinn er af Samgönguráðuneytinu segist vera að ,,fara yfir þessi heildsölumál [...] og kanna leiðir til  að koma á móts við þá sem eru ósáttir". Hvort og hvenær af því verður er óljóst.

Vegna þessara samkeppnishindrana hefur viðskiptavinum Snerpu á áhrifasvæði útboðsins óhjákvæmilega fækkað nokkuð - beinlínis vegna þess að verulega hefur skort á að framkvæmd útboðsins hafi verið eftir útboðslýsingu. Eins og aðrir keppinautar Símans hafa greinilega einnig reynt.
Hópurinn sem veitti tölvunni viðtökur
Hópurinn sem veitti tölvunni viðtökur
1 af 2
Hjá Grunnskóla Bolungarvíkur var þörf á tölvu fyrir sérkennslu og tóku Opin Kerfi og Snerpa sig saman og færðu Sjálfsbjörgu í Bolungarvík hagkvæma og meðfærilega Compaq 610 fartölvu.
Ragnar Aron Árnason hjá Snerpu færði Rúnari Arnarsyni ferðavélina og kom fram við það tækifæri að ferðavélin mun nýtast vel við sérkennslu fyrir fatlaða í Grunnskóla Bolungarvíkur.


Opin kerfi og Snerpa eru samstarfsaðilar um þjónustu og rekstur á upplýsingakerfum á norðanverðum Vestfjörðum. Samstarfið gerir báðum aðilum kleift að veita mjög góða þjónustu og sérstaklega hefur verið horft til þess að bjóða upp á Alrekstur fyrir fyrirtæki og stofnanir á svæðinu.
Alrekstrarmótelið byggir á því að fyrirtæki og stofnanir geta „keypt sér tölvudeild eða hluta tölvudeildar" til að reka upplýsingakerfi viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar. Hugsunin er að fyrir fastan kostnað á mánuði er hægt að fá allan hefðbundinn rekstur tölvukerfa með aðgengi að öllum helstu sérfræðingum og ráðgjöf eftir þörfum. Gagnvart viðskiptavinum koma Snerpa og Opin kerfi fram sem einn samstarfsaðili. Snerpa er í beinum tengslum við viðskiptavini á svæðinu en Opin kerfi hafa til viðbótar fjöldann allan af sérfræðingum og búnað til að bjóða upp á.

Falspóstur.
Falspóstur.
1 af 2
Meðfylgjandi póstur er farinn að dreifast um netið og lítur hann eins út og verið sé að biðja notendur um að uppfæra upplýsingar um sig á Facebook. Þar sem vefurinn er mjög vinsæll sér Snerpa sérstaka ástæðu til að vara við slíkum póstum. Sé smellt á tengilinn í skeytinu er viðkomandi fluttur á vefsíðu í Brasilíu og boðið að opna viðhengi sem er væntanega smygildi (spyware) sem getur mögulega stolið upplýsingum úr tölvu notandans eða jafnvel notað hana til að senda út ruslpóst. Notendur eru hvattir til að henda svona póstum, sé ekki 100% öruggt að þeir séu ekta og uppgefin vefslóð í þeim rétt. Svo sem sjá má á þeirri vefslóð sem fylgir póstinum, sem er http://www.facebook.com.jjjiok.org.uk/ er sitthvað grunsamlegt, lénið er breskt, skráður eigandi lénsins er sagður í Belgíu og IP-talan sem vefþjónninn er staðsettur á er staðsettur í Brasilíu. Kvartað hefur verið til þeirra sem selja aðgang að þessum tiltekna vefþjóni en síðan er enn virk þegar þetta er ritað.
Starfsmenn Snerpu undirbúa partý!
Starfsmenn Snerpu undirbúa partý!
Um þessar mundir eru 15 ár frá því tölvuþjónustan Snerpa hóf starfsemi sína.  Í tilefni að því  verður opið hús, í húsnæði fyrirtækisins Mánagötu 6 á Ísafirði, frá 15:00 til 17:00 föstudaginn 27. nóvember.  Hinn margrómaði Hermann pylsusali verður með vagninn fyrir utan Snerpu og viljum við bjóða alla velkomna í pylsupartý.  Auk þess munu starfsmenn Snerpu kynna starfsemina og þá fjölbreyttu þjónustu sem fyrirtækið bíður upp á og tölvubúnaður frá Opnum kerfum kynntur.
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00