A A A
Í dag, 25 nóvember eru komin 15 ár síðan Snerpa hóf starfsemi hér á Ísafirði. Í tilefni þess var starfsmönnum boðið upp á rjómatertu og heitann rétt í kaffinu. Er þetta aðeins byrjunin á fagnaðarlátunum, en á föstudaginn á milli 15:00 -17:00 mun verða smá húllum hæ hérna að Mánagötu 6. Verður boðið upp á pylsur frá hinum margrómaða pyslusala, Hermanni Grétari Jónssyni, en hann mun mæta með heilann pylsuvagn hérna fyrir utan og gefa gestum okkar pylsu að eigin vali. Einnig verður opið hús hjá okkur og verður þar hægt að skoða húsakynnin og starfsemina nánar.

Vertu velkominn og við hlökkum til að sjá þig!
Stjórnborð Snerpils
Stjórnborð Snerpils
Eitt af lykilatriðunum í rekstri fyrirtækja er að vera sýnilegur á markaði og vönduð heimasíða er mjög mikilvægur þáttur í því.  Það er dýrt að koma sér upp góðri heimasíðu og við vitum að ný og lítil fyrirtæki þurfa að horfa í hverja krónu í uppbyggingu og rekstri. Því bjóðum við upp á nýjung vefmálum. Um er að ræða lágmarksútgáfu af vefumsjónarkerfinu Snerpli á verði sem ætti að henta öllum  nýsköpunar og sprotafyrirtækjum. 
Fyrirtækið leggur til efnið á síðuna og kaupir viðkomandi lén.  Þegar fyrirtækið vex og þörfin fyrir ítarlegri og stærri heimasíðu kemur er lítið mál að fá tilboð í stækkun og breytingar.  Snerpa hefur þróað og rekið vefumsjónarkerfið Snerpil frá árinu 2006 og fjölmörg fyrirtæki og sveitarfélög hafa nýtt sér þjónustuna.  Það er mikilvægt að halda uppi vandaðri og faglegri  þjónustu við þau fyrirtæki sem eru að byggja upp sitt markaðstarf, hvort sem á við nýja þjónustu eða ný fyrirtæki,  þó ástandið í þjóðfélaginu verði til þess að fyrirtæki hafi minni fjármuni til að spila úr.

Vefkerfið inniheldur fréttakerfi, fjórar undirsíður og hýsingu fyrir 3.059 kr. á mánuði og startkostnaður er aðeins 75.000 kr. (öll verð eru án vsk.) sjá nánari upplýsingar á vefsíðu fyrirtækisins hér.

Ef þú ert að setja saman rekstur, eða hefur staðið í rekstri og vilt verða sýnilegri, endilega settu þig í samband við okkur!
Krakkar úr Grunnskóla Ísafjarðar komu í heimsókn til okkar í dag. Þau eru öll í tölvuvali í 9. bekk og fengu spes tölvutíma í dag hjá kennara sínum Laufeyju Eyþórsdóttur, nefnilega skoðunarferð í Snerpu. Í ferðinni fengu þau meðal annars að skoða ljósleiðara í smásjá, sjá tölvuverkstæði, kynnast vefumsjónarkerfinu Snerpli og fræðast um starfsemi Snerpu.
1 af 2
Nú þegar vorið er komið og grastóin farin að sýna lit er einnig kominn tími til að lagfæra skemmdir á jarðsímakerfum. Meðfylgjandi mynd sýnir hvernig það að setja niður tré getur endað með miklu tjóni ef ekki er rétt að farið. Þarna fór í sundur ljósleiðari og nauðsynlegt að skipta um.
Tilraunir til stulds á lykilorðum á netinu gerast sífellt bífræfnari. Þessa dagana er t.d. í gangi tölvupóstur þar sem beðið er um staðfestingu á því að millifærsla hafi farið fram af PayPal greiðslureikningi viðtakandans. Vegna þess að þetta er nokkuð vel útfært gabb, höfum við séð ástæðu til að lýsa þessu sérstaklega á fróðleiksvef okkar. Sjá nánar hér.
Tölvukrækir
Tölvukrækir
1 af 2
Snerpa vill senda bestu jóla og nýárskveðjur til ykkar allra og þakkar viðskiptin á liðnu ári. Rekstur Snerpu hefur farið í gegnum miklar breytingar á árinu sem er að líða og hafa þær tekist vonum framar. Þjónustustigið hefur hækkað til muna með innkomu Mílumanna og einnig hefur kúnnahópur fyrirtækja vaxið jafnt og þétt. Það er ánægjulegt að segja frá því.

Eins og í fyrra, fylgir með forláta mynd af skrýtnum jólasvein en þessi nefnist Tölvukrækir. Látum svo fylgja með myndina frá í fyrra en það var hann Snúrusníkir.

Góðar stundir.
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf hefur nú opnað nýja vefsíðu á www.frosti.is og notast hún við Snerpils vefkerfið sem vefdeild Snerpu hannaði. Á síðunni er að finna allar helstu upplýsingar um fyrirtækið ásamt því að hægt er að senda þar inn atvinnuumsókn í gegnum rafrænt form. Starfsmannafélag HG er einnig með aðsetur þarna og má þar nálgast fréttir af starfi þess ásamt myndaalbúmum. Síðan er bæði á ensku og íslensku.
Starfsmenn frá Snerpu og Mílu eru í dag á Patreksfirði að ljúka fullnaðarviðgerð á ljósleiðaranum sem slitnaði 12. nóvember sl. Einnig eru unnar í leiðinni breytingar á samböndum og tengingar fyrir GSM-senda á svæðinu. Fyrir helgi lokaðist leiðin um Hrafnseyrarheiði en hefur nú verið opnuð aftur. Við smellum hér með mynd af viðgerðinni 12. nóvember sl.
Það hefur verið lengi á döfinni að opna nýjan vef Snerpu enda sá eldri barn síns tíma. Til þess höfum við haft frábært tól sem er vefumsjónarkerfið Snerpill sem við höfum undanfarin misseri boðið þeim sem hýsa vefi sína hjá Snerpu. Þó nýi vefurinn hafi verið um það bil tilbúinn um nokkurt skeið hefur blessunarlega verið nóg að gera við vefsmíði fyrir viðskiptavini og þetta verkefni því setið á hakanum. Í dag, 25. nóvember varð Snerpa 14 ára og ákváðum við af því tilefni að láta vaða og sleppa nýja vefnum í loftið. Gerið svo vel.
1 af 2
Í gær var undirritaður samstarfsamningur á milli Menntaskólans á Ísafirði, Opinna kerfa og Snerpu.
 
Samningurinn færir Menntaskólann í röð fremstu skóla í tölvumálum bæði gagnvart nemendum og kennurum.  Nemendum er nú í fyrsta skipti gert skilt að nota fartölvu við nám í skólanum til hagræðis bæði fyrir nemendur og kennara. Komið er á móts við þá nemendur sem ekki eiga fartölvu og þeim gefinn kostur á að leigja fartölvu á 10.000 kr á önn.
 
Inn í þessum samningi er gert ráð fyrr því að 23 vinnustöðva- og  netþjónar verði hýstir í vélasal Snerpu til að mæta ströngustu öryggiskröfum. Auk þess festi skólinn kaup á 300 fartölvum fyrir nemendur og kennara. Vébúnaðurinn í Snerpu er tengdur Menntaskólanum með 1 Gbps ljósleiðara sem lagður var fyrir skömmu af starfsmönnum Snerpu. Samband þetta nægir fyrir öflugustu grafíkvinnslu og hægt er að tengjast vinnustöðvunum hvaðan sem er svo lengi sem nettenging er í boði.

Sif Helgadóttir og Þórður Jensson, starfsmenn Opinna kerfa komu í heimsókn til Ísafjarðar í gær og skrifuðu undir samninginn ásamt Jóni Reyni skólameistara menntaskólans, Gísla Halldórssyni fjármálastjóra menntaskólans og starfsmönnum Snerpu, þeim Matthildi Helgadóttur framkvæmdastjóra og Ragnari Árnasyni þjónustu- og sölustjóra. Samningur þessi hleypur á tugum milljóna og mun styrkja uppbyggingu fyrirtækjaþjónustu Snerpu enn frekar....
Meira
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00