A A A
Það hefur verið lengi á döfinni að opna nýjan vef Snerpu enda sá eldri barn síns tíma. Til þess höfum við haft frábært tól sem er vefumsjónarkerfið Snerpill sem við höfum undanfarin misseri boðið þeim sem hýsa vefi sína hjá Snerpu. Þó nýi vefurinn hafi verið um það bil tilbúinn um nokkurt skeið hefur blessunarlega verið nóg að gera við vefsmíði fyrir viðskiptavini og þetta verkefni því setið á hakanum. Í dag, 25. nóvember varð Snerpa 14 ára og ákváðum við af því tilefni að láta vaða og sleppa nýja vefnum í loftið. Gerið svo vel.
1 af 2
Í gær var undirritaður samstarfsamningur á milli Menntaskólans á Ísafirði, Opinna kerfa og Snerpu.
 
Samningurinn færir Menntaskólann í röð fremstu skóla í tölvumálum bæði gagnvart nemendum og kennurum.  Nemendum er nú í fyrsta skipti gert skilt að nota fartölvu við nám í skólanum til hagræðis bæði fyrir nemendur og kennara. Komið er á móts við þá nemendur sem ekki eiga fartölvu og þeim gefinn kostur á að leigja fartölvu á 10.000 kr á önn.
 
Inn í þessum samningi er gert ráð fyrr því að 23 vinnustöðva- og  netþjónar verði hýstir í vélasal Snerpu til að mæta ströngustu öryggiskröfum. Auk þess festi skólinn kaup á 300 fartölvum fyrir nemendur og kennara. Vébúnaðurinn í Snerpu er tengdur Menntaskólanum með 1 Gbps ljósleiðara sem lagður var fyrir skömmu af starfsmönnum Snerpu. Samband þetta nægir fyrir öflugustu grafíkvinnslu og hægt er að tengjast vinnustöðvunum hvaðan sem er svo lengi sem nettenging er í boði.

Sif Helgadóttir og Þórður Jensson, starfsmenn Opinna kerfa komu í heimsókn til Ísafjarðar í gær og skrifuðu undir samninginn ásamt Jóni Reyni skólameistara menntaskólans, Gísla Halldórssyni fjármálastjóra menntaskólans og starfsmönnum Snerpu, þeim Matthildi Helgadóttur framkvæmdastjóra og Ragnari Árnasyni þjónustu- og sölustjóra. Samningur þessi hleypur á tugum milljóna og mun styrkja uppbyggingu fyrirtækjaþjónustu Snerpu enn frekar....
Meira
Í dag eftir kl 17:00 og eitthvað fram eftir kvöld má búast við truflunum á einum af vefþjónum Snerpu vegna vélbúnaðaruppfærslu. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda....
Meira
50 línu símastrengur slitnaði við Ísafjarðaflugvöll í morgun og unnið er að viðgerð. Hefur flugvöllurinn því verið símasambandslaus mestan hluta morguns en hægt hefur verið að ná sambandi við skiptiborð í Reykjavík á meðan. Reikna starfsmenn Snerpu með að símasamband verði komið á uppúr klukkan 11. Verið var að grafa fyrir ræsi af starfsmönnum Ísafjarðarflugvallar er slitið varð.
...
Meira
Í dag birtust í Snerpu aufúsugestir. Þar voru á ferð Kristján L Möller samgönguráðherra og aðstoðarmaður hans Róbert Marshall, Guðbjartur Hannesson, alþingismaður og Anna Kristín Gunnarsdóttir varaþingmaður. Fengu gestirnir móttökur með virktum og snöggsoðna skoðunarferð um fyrirtækið enda á leið út á flugvöll í morgunsárið, m.a til að kynna sér hvað þarf til að hann teljist fullgildur millilandavöllur.

Í Snerpu standa nú yfir töluverðar breytingar á húsnæði í kjölfar þjónustusamnings sem Snerpa gerði nýlega við Mílu ehf. um viðhald og framkvæmdir við fjarskiptasambönd Mílu á norðanverðum Vestfjörðum og víðar. Við það að bæst hafa við tveir starfsmenn og sá þriðji væntanlegur innan tíðar auk þess sem einum starfsmanni Mílu er leigð aðstaða er nauðsynlegt að fara í nokkrar breytingar sem nú eru í fullum gangi.
...
Meira
Við óskum viðskiptavinum okkar til sjávar og sveita gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og þökkum fyrir viðskiptin á liðnum árum, í stað þess að senda út hefðbundin jólakort eða gjafir til helstu viðskiptavina höfum við ákveðið að styðja við bakið á þeim sem sárt eiga um að binda þessi jól.

Opnunartími um hátíðirnar:
  • 24.des lokað
  • 25. des lokað
  • 26. des lokað
  • 27. des opið 8-12 13-17
  • 28. des 8-12 13-17
  • 29. des lokað
  • 30. des lokað
  • 31.des opið 8-12
Þeim sem þurfa nauðsynlega á þjónustu að halda er bent á að bakvakt er í síma 840-4000 til að kalla út starfsmann.

Meðfylgjandi mynd var tekin þegar jólasveinninn var að snýkjast eftir snúrum í vélasal Snerpu. Þetta er hann Snúrusníkir og má sjá stærri útgáfu af þessari mynd af honum hérna!.
...
Meira
Hér eftirfarandi er fréttatilkynning Snerpu ehf og Mílu varðandi samvinnu:

Snerpa ehf. og Míla ehf. skrifuðu í dag undir samstarfssamning þess efnis að Snerpa taki að sér að þjónusta fjarskiptakerfi Mílu á norðanverðum Vestfjörðum. Samningurinn við Mílu leiðir af sér að þrír starfsmenn Mílu flytjast yfir til Snerpu frá og með áramótum. Starfsmenn Snerpu eru átta en verða ellefu við þessa breytingu. Með því að taka að sér starfsemi Mílu á Vestfjörðum fær Snerpa tækifæri á því vaxa og er það í takt við stefnu fyrirtækisins. Um er að ræða töluverð samlegðaráhrif og hagræði fyrir bæði fyrirtækin hvað varðar nýtingu á mannafla og húsnæði.

Einnig mun þetta skila sér í bættri þjónustu enda verða fleiri starfsmenn tiltækir við þjónustu beggja fyrirtækja með tilkomu samningsins. Við upphaf samningsins verður þjónustusvæðið sem Snerpa sinnir það sama og starfsstöð Mílu á Ísafirði hefur sinnt hingað til, eða frá norðanverðum Arnarfirði allt til Steingrímsfjarðarheiðar. Möguleiki er á að svæðið stækki enn frekar síðar með bættum samgöngum á svæðinu.

“Það er mjög ánægjulegt fyrir Snerpu að gera samning um að þjónusta jafn stórt fjarskiptakerfi. Þetta er ein aðferð fyrir Snerpu til þess að vaxa innanfrá og gefur heimamönnum tækifæri á að taka að sér krefjandi verkefni. Einnig metum við mikils það traust sem samningur sem þessi felur í sér.” segir Matthildur Helgadóttir, framkvæmdastjóri Snerpu.

“Ég er sannfærður um að þjónusta við viðskiptavini Mílu á eftir að styrkjast við þessa breytingu. Míla er með starfsemi á 13 stöðum á landinu. Við höfum verið að straumlínulaga starfsemina og höfum farið þá leið að vinna með verktökum í ákveðnum tilvikum í stað þess að vera með starfsemi í hverju bæjarfélagi. Það hefur gengið mjög vel,” segir Páll Á. Jónsson, framkvæmdastjóri Mílu.

Snerpa var stofnuð árið 1994 á Ísafirði og er með elstu fjarskiptafyrirtækjum landsins. Fyrirtækið rekur alhliða tölvu og netþjónustu og hafa starfsmenn fyrirtækisins sérhæft sig í umsjón tölvukerfa fyrir fyrirtæki og stofnanir, vefforritun og hugbúnaðargerð auk almennrar tölvuþjónustu. Snerpa er í samstarfi við ýmis öflug fyrirtæki. Má þar nefna að fyrirtækið á og rekur fjarskiptakerfið INmobil sem er gervihnattaþjónusta til skipa í samstarfi við Símann og sér um alrekstur Opinna kerfa á Vestfjörðum.

Míla ehf. rekur fjarskiptanet um allt land. Fyrirtækið er í eigu Skipta hf. og var nýlega skilið frá Símanum. Kjarnastarfsemi Mílu er að byggja upp og reka traust og öflugt fjarskiptanet á Íslandi. Önnur fjarskiptafyrirtæki tengjast þessu neti í gegnum mismunandi lausnir. Hlutverk Mílu er að selja lausnir sínar til fyrirtækja og stofnana sem stunda fjarskiptastarfsemi. Míla sérhæfir sig m.a. í rekstri og ráðgjöf vegna fjarskiptakerfa, aðstöðuleigu fyrir upplýsingatækni og ýmsa þjónustu við dreifikerfi.

Frekari upplýsingar veita: Páll Á. Jónsson, framkvæmdastjóri Mílu í síma: 858 6101 og Matthildur Helgadóttir, framkvæmdastjóri Snerpu, í síma 840 4001.
...
Meira
Það gleður okkur mikið að tilkynna að það hefur orðið fjölgun í fjölskyldu eins starfsmanns Snerpu, en Ragnar Aron Árnason eignaðist dóttur þann 12.12.07. Móður og barni heilsast vel.

Meðfylgjandi upplýsingar eru teknar af vef Heilbrigðisstofunar Ísafjarðarbæjar:

Stúlka Ragnarsdóttir f. 12.12.2007.
Foreldrar: María Friðgerður Lárusdóttir og Ragnar Aron Árnason, Ísafirði.
Nr. 44.
Þyngd: 4205 gr.
Lengd: 52 cm.
Ljósmóðir: Halldóra Karlsdóttir.

Raggi, Mæja og Sara Dögg, við óskum ykkur innilega til hamingju með litlu prinsessuna!

Starfsfólk Snerpu ehf.
...
Meira
Það gleður okkur Snerplana að tilkynna að samstarfssamningur hefur verið undirritaður á milli Snerpu og Háskólaseturs Vestfjarða. Hér má lesa tilkynninguna í heild sinni:

"Háskólasetur Vestfjarða og Snerpa skrifa undir samstarfssamning

Tölvufyrirtækið Snerpa á Ísafirði hefur nú alfarið tekið að sér umsjón vefmála Háskólaseturs Vestfjarða. Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs, og Matthildur Helgadóttir, framkvæmdastjóri Snerpu, skrifuðu undir samning þar að lútandi nú í morgunn. Ágúst Atlason, margmiðlunarhönnuður hjá Snerpu, vinnur þessa dagana að hönnun nýrrar vefsíðu fyrir Háskólasetrið. Ákveðið var s.l. vor að fara út í algjöra endurskoðun á vefsíðu setursins þar sem nú fara í hönd miklar breytingar á starfseminni og því nauðsynlegt að endurhanna síðuna og laga hana að núverandi þörfum og varð vefumsjónarkerfið Snerpill fyrir valinu, en kerfið er hannað af Snerpumönnum og hefur reynst mjög vel."

Vonum við að þetta sé upphafið af ánægjulegu samstarfi á milli Snerpu og Háskólaseturs. Í deiglunni eru nokkrar síður í viðbót, innan þessa samstarfs, þar á meðal fyrir Vestjarðaakademíuna.
...
Meira
Það er langt liðið á sumar og er sumarfríum starfsmanna að ljúka. Allt hefur gengið áfallalaust fyrir sig enda þannig búið um hnútana áður en starfsfólk fer í frí. Yfir var sumarið var settur mjög svalt kælikerfi og er óhætt að segja að þetta sé svalasta kælikerfi sem sett hefur verið upp á Vestfjörðum til kælingar raftækja. Aukningin á búnaði í vélasal okkar hefur verið mikil og var þá brugðið á það ráð að kaupa þennann nýja kælibúnað. Eykur þetta öryggi og endingu búnaðar til muna.
Mikið er að gera í vefhönnun einnig og ættu nokkrar síður að sjá dagsins ljós á næstu vikum. Í vinnslu eru vefsíður fyrir Reykhólahrepp, Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði, Heilsugæsluna í Bolungarvík og einnig fer ný vefsíða fyrir Snerpu að verða tilbúin.

Nú nýverið náðust samningar við Háskólasetur Vestfjarða um nýjan vef fyrir setrið. Hefst sú vinna núna í haust í nánu samstarfi við Háskólasetrið og er ætlun að þróunarstarfsemi verði mikil á milli Snerpu og Háskólaseturs í sambandi við ýmis kerfi sem gætu nýst setrinu við vinnu sína og nemendum við nám.

Spennandi tímar framundan.
...
Meira
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00