A A A
Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi samdi nýlega við Snerpu um að sjá um póstöryggi fyrir skólann, m.a. að verja notendur gegn veirum í tölvupósti og að sjá um ruslpóstvarnir. Um nokkurra ára skeið hefur sýnt sig að það er nauðsynlegt að veiruskanna allan póst og hreinsa burt úr honum bæði veirusmitaðan póst og einnig ruslpóst en ruslpóstur er nú talinn vera að jafnaði um 67% af öllum tölvupósti. Snerpa hóf að veiruskanna tölvupóst árið 1997 og ruslpóstvarnir voru settar upp árið 1998 og var Snerpa þá fyrsta íslenska netfyrirtækið til að bjóða slíka þjónustu. Nú er póstur skannaður gegn tölvuveirum með tvöföldu kerfi og mjög fullkomið safn greiningartóla greinir frá ruslpóst og ýmis konar svikapóst.

Snerpa hefur nú um nokkuð skeið boðið upp á að taka við pósti fyrir fyrirtæki og stofnanir, veiruhreinsa hann og sía frá ruslpóst. Auk þess er sérmerktur póstur sem talið er líklegt að sé 
ruslpóstur en ekki óhætt að sía frá. Þetta er gert án þess að breyta þurfi nokkru í póstmóttöku eiganda póstins öðru en að hann taki einungis við pósti frá Snerpu. ,,Það var kominn tími á að endurnýja veiruvarnaleyfi fyrir póstþjón okkar og eftir að hafa leitað tilboða kom í ljós að þetta var hagstæðasta lausnin af þeim sem kannaðar voru.” segir Ragnar Geir Brynjólfsson kerfisstjóri hjá Fjölbrautaskóla Suðurlands. ,,Einnig hefur komið í ljós að ruslpóstur hefur nánast horfið eftir að við tókum að notfæra okkur þjónustu Snerpu. Notendur sem voru að fá um 20 ruslpósta á dag fá nú 1-2 slíka. Einhverjir hafa ekki fengið einn einasta ruslpóst í viku og eru alsælir með það.”
Chús Barja er kerfisstjóri hjá Fjöltækniskóla Íslands sem hefur notað póstöryggislausnir Snerpu frá árinu 2003: ,,Miðað við annars staðar þar sem ég þekki til þá er þetta mjög gott, ég fæ sjálfur 1-2 ruslpósta á dag sem er frábær árangur.”

Veiruhreinsun Snerpu er frá Kaspersky Labs en Snerpa hefur selt veiruvarnaforrit frá Kaspersky frá árinu 1995. Ruslpóstvörnin sem gengur undir nafninu Póstvörður er skrifuð af þróunardeild Snerpu og aðlöguð ýmsum fyrirliggjandi lausnum sem fyrir eru á markaðnum, m.a. MailScanner og SpamAssassin greiningarforritunum.

Nánari upplýsingar um póstöryggisþjónustu Snerpu er að finna á vef Snerpu
...
Meira
Tölvuormar eru orðnir það algengir á Netinu að það er varla fréttnæmt þegar nýtt afbrigði gerir vart við sig. En nú er ástæða til að ítreka enn hættuna því að óvenjuskætt eintak sem gefið hefur verið nafnið Nyxem.e (einnig W32/Kapser.A@mm ) mun á morgun valda umtalsverðu tjóni í þeim tölvum sem það er virkt. Mikilvægt er að þeir sem hafa uppsett veiruvarnaforrit athugi hvort það er nýlega uppfært og virkt en hafi uppfærsla ekki verið gerð eftir 17. janúar sl. munu veiruvarnaforrit ekki verja notendur gegn þessum tiltekna ormi. Komist ormurinn inn á tölvu, t.d. vegna þess að veiruvarnaforrit hafa ekki verið rétt uppfærð, slökkva þau á veiruvörninni og gera hana ónothæfa. Þarf þá að fylgja leiðbeiningum frá framleiðendum til að farga orminum og gera veiruvörn virka á ný. Leiðbeiningar frá Kaspersky Lab eru hér fyrir þá sem telja að veiruvörn þeirra sé óvirk vegna þessa.

Þeim sem eiga ekki eða eru með útrunna veiruvörn bendum við á antivirus.is vefinn en þar er hægt að kaupa eða endurnýja KAV veiruvörnina á einfaldan óg ódýran hátt.

...
Meira
Svartfoss, hið glæsilega nýja flutningaskip Eimskipa kom til hafnar á Ísafirði í gær. Svartfoss er hið fyrsta af fjórum systurskipum sem Eimskip hafa samið um smíði á. Eimskip hafa notað INmobil fjarskiptakerfið frá Snerpu í öðrum skipum sínum og við komu skipsins til Íslands var það eitt fyrsta verkið að tengja INmobil um borð. INmobil notar gerfihnetti og önnur tiltæk símakerfi eins og NMT til að koma tölvupósti milli skips og yfir á Internetið. Þar sem afkastageta símasambanda yfir gerfihnetti er mun minni en á Internetsamböndum í landi er nauðsynlegt að meðhöndla gögn sérstaklega fyrir þessar sendingar, safna þeim saman og þjappa þeim og afþjappa svo á hinum enda sambandsins. Þetta gerist allt án sérstakra afskipta notandans og þarf hann ekki annað en að lesa og skrifa póst eins og hann væri á sítengdu netsambandi. INmobil býður upp á 15 mismunandi fjarskiptaleiðir þannig að hægt er að nota nánast hvaða tæki sem er til að koma tölvupósti á milli.

...
Meira
Snerpa hefur nú komið upp sérstökum vefþjóni fyrir EcWeb vefumsjónarkerfið sem er öflugt vefumsjónarkerfi fyrir hýsingu á Windows 2003 vefþjónum.

Nokkur vestfirsk fyrirtæki og sveitarfélög hafa gert samninga um hýsingu á EcWeb kerfinu og verða þessir vefir allir hýstir hjá Snerpu og munu opna hver af öðrum á næstu vikum. Nú þegar hafa verið opnaðir nýir vefir fyrir Odda hf. á Patreksfirði (http://www.oddihf.is/) og Orkubú Vestfjarða (http://www.ov.is/) og í smíðum eru m.a.nýir vefir fyrir Bolungarvíkurkaupstað og Ísafjarðarbæ.

Með þessu mun Snerpa auka breidd á þjónustu sinni enn frekar og skapast með þessarri breytingu ný tækifæri til að þjónusta kröfuharða notendur hvað varðar hýsingu vefja á sérhæfðan hátt. Jafnframt mun Snerpa áfram bjóða hýsingu á vefjum í Unix umhverfi enda er þar um mjög fjölhæfa þjónustu að ræða fyrir þá sem þurfa trausta og góða vefhýsingu með hámarks sveigjanleika á ódýran hátt. Í bæði Windows- og Unix-hýsingu býðst eigendum léna einnig að nota netföng á sínu eigin léni með aðgangi að vefpósti og afar öflugum ruslpóstvörnum....
Meira
Gengið hefur verið frá tengingu á vefmyndavél sem komið hefur verið fyrir í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og sést úr henni yfir á Silfurtorg í miðbænum. Hægt er að skoða lifandi mynd úr vélinni á vefslóðinni http://webcam.isafjordur.is/home/JViewer.html Vélin er í eigu Ísafjarðarbæjar en Snerpa leggur til tengingu við Internetið.

Einnig er hægt að skoða myndina úr vélinni á vefmyndavélarsíðu Snerpu og á veður- og samgönguvef bb.is...
Meira
Íbúar í Hnífsdal geta nú glaðst yfir því að nú er hægt að fá
ADSL-tengingar í  Hnífsdalnum. Starfsmenn Snerpu veita fúslega
allar frekari upplýsingar í síma 520-4000 eða í tölvupósti á
snerpa@snerpa.is. Við minnum á tilboð okkar til Hnífsdælinga sem var
borið í hús um daginn og einnig á það að Snerpa getur séð um pöntun á
ADSL-línunni hjá Símanum. Einnig viljum við taka fram að binditilboð
Símans bindur notendur einungis gagnvart ADSL-línu en netþjónustuna
þarf ekki að kaupa hjá Símanum sé binditilboðinu tekið. - Betri
þjónusta...!
...
Meira
Snerpa hefur ákveðið að bjóða notendum í ADSL-þjónustu upp nýja netþjónustu sem ber nafnið Frítt niðurhal
Grunnþjónustan kostar einungis 4.000 kr. á mánuði og í henni verður innifalin sama þjónusta og annarri ADSL-þjónustu auk þess sem notendur fá fría útlandaumferð. Að auki eru gerðar breytingar á þeiri þjónustu sem í boði var fyrir þannig að þeir sem hafa keypt 1 GB gagnamagn á ADSL fá nú fyrir sama verð 1,25 GB og verð á umframgagnamagni lækkar í kr. 2,20 pr. MB. Verð á umframgagnamagni í minnsta flokknum sem er 250 MB lækkar einnig úr 4 kr. pr. MB í 3,20.

Að auki er nú sett á verðþak í ADSL þannig að ADSL-notendur greiða aldrei fyrir meira en sem svarar um 2 GB af útlandaumferð. Þessar breytingar eru boðaðar nú þar sem Snerpa telur sig geta fylgt á eftir stærri netþjónustum landsins með jafngóða eða betri þjónustu. Einnig er innifalin föst IP-tala og allt að fimm pósthólf.

Jafnframt breytingunum í ADSL-þjónustunni verða einnig samsvarandi lækkanir á umframgjöldum í örbylgjuþjónustu Snerpu og einnig stækkar 1 GB verðflokkurinn þar í 1,25 GB fyrir sama gjald. Enn sem komið er verður þó ekki í boði frítt niðurhal eða verðþak á þeim tengingum þar sem ekki hefur orðið nein lækkun á samböndum hjá Landssíma Íslands hf. á þá staði þar sem boðið er örbylgjusamband.

Nánari upplýsingar er að finna í verðskrá Snerpu hér....
Meira
- Snerpa fagnar 10 ára afmæli



Á morgun, 25. nóvember verður Snerpa 10 ára. Í tilefni af því ætlar Snerpa

að bjóða netáskrifendum sínum upp á frítt niðurhal á netumferð dagana

27.-28. nóvember. Þar með er þó ekki allt talið því að netáskrifendur með

sítengingu hjá Snerpu fá einnig tífalt niðurhal frá útlöndum í desember.

Boðið gildir til allra viðskiptavina, bæði núverandi og einnig til allra

sem kaupa netáskrift hjá Snerpu til áramóta.



Þann 25. nóvember 1994 var stofnað á Ísafirði fyrirtækið Snerpa. Tilgangur

félagsins var sagður vera að stofna svæðismiðstöð til tenginga við

Internetið, veraldarvefinn og tölvupóstþjónustu sem var þá ný þjónusta sem

fáum fannst á þessum tíma líklegt að þeir hefðu þörf fyrir. En tímarnir

breytast og mennirnir með eins og þar segir. Nú starfa hjá Snerpu 7

starfsmenn í fullu starfi og þjónusta þeir notendur með um 4.000 netföng.

Snerpa rekur eitt af stærri víðnetum landsins í örbylgjuþjónustu á 13

stöðum á landinu og hefur einnig frá árinu 2001 boðið þjónustuna INmobil

sem sér sjómönnum fyrir tölvupósts- og upplýsingaþjónustu á hafi úti.






Sjónvarp yfir ADSL



Vegna frétta af því að Síminn er að hefja sjónvarpsdreifingu yfir ADSL hefur borist töluvert af fyrirspurnunum um þjónustuna. Til að einfalda málið fyrir notendur okkar höfum við tekið saman algengar spurningar um þjónustuna og svör við þeim:

Meira......
Meira
Vegna frétta af því að Síminn er að hefja sjónvarpsdreifingu yfir ADSL hefur borist töluvert af fyrirspurnunum um þjónustuna. Til að einfalda málið fyrir notendur okkar höfum við tekið saman algengar spurningar um þjónustuna og svör við þeim:





Get ég keypt netþjónustuna hjá Snerpu?


Já. Netþjónustan notar ekki sömu rás og sjónvarpsmerkið og er óháð því.


Hvað þarf ég til að geta tekið við sjónvarpi yfir ADSL?

  • ADSL-tengingu (línu) frá Símanum á símstöð sem sendir sjónvarpsmerki inn á ADSL.

  • Endabúnað (ADSL-beini) sem styður sérrásir fyrir sjónvarpsmerkið.

  • Afruglara sem fylgir áskriftinni og þú færð hjá Símanum.


Meiri upplýsingar hér...
...
Meira
Ákveðið hefur verið að auka afköst á örbylgjuneti Snerpu. Í boði hafa verið tveir hraðar, 256 kbps og 512 kbps. 256 kbps hraðinn verður áfram í boði en 512 kbps hraðinn verður aukinn í 768 kbps. Þessar breytingar eru gerðar án þess að það hafi í för með sér hækkun gjalds fyrir þjónustuna. Lokið er við að framkvæma breytingarnar á öllum stöðum þar sem örbylgjunet Snerpu er í boði.



Ástæða er til að taka fram að þar til nýlega voru afköst á örbylgjuneti Snerpu sambærileg við ADSL. Þetta hefur breyst þar sem Síminn jók afköst í ADSL-kerfinu án kostnaðaraukningar fyrir notendur og hafa því jafnframt allir ADSL-notendur Snerpu nú fengið aukinn hraða í ýmist 1, 2 eða 3 Mbps. Því miður hefur ekki verið hægt að fylgja þessu eftir í örbylgjusamböndum, þar sem Síminn er ekki tilbúinn að auka afköst í samböndum sem Snerpa notar á milli staða án kostnaðaraukningar fyrir notendur.



Þrátt fyrir þetta var ákveðið að gera þessar breytingar eftir prófanir á því hvort hægt er að bjóða aukinn hámarkshraða án þess að það hafi áhrif á gæði sambanda en einnig er verið að fylgja því markmiði Snerpu að bjóða ávallt bestu þjónustu sem möguleg er fyrir það gjald sem greitt er.



Örbylgjunet Snerpu er fáanlegt á Hólmavík, Drangsnesi, Bíldudal, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Ísafirði, Hnífsdal, Bolungarvík, Súðavík, Reykhólum, í Gilsfirði og á Þórshöfn....
Meira
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00