A A A
Snerpa hefur nú lækkað verð á sítengingum um örbylgju, þannig að algengustu tengingarnar eru nú boðnar á hliðstæðu verði og ADSL-sítengingar. Þannig lækkar tenging sem er allt að 256 kbps hraði með 500 MB niðurhali frá útlöndum um 7,1% úr 4.900 krónum í 4.550. Algeng tenging með 1000 MB niðurhal á allt að 256 kbps hraða lækkar um 13,4% úr 6.700 kr. í 5.800 - Einnig hefur verið opnað fyrir örbylgjunetið á Ísafirði.



Hægt er að fá meiri hraða á Flateyri, Suðureyri, Ísafirði, Hnífsdal, Hólmavík og Drangsnesi. Þannig mun tenging á allt að 512 kbps hraða með 500 MB niðurhali frá útlöndum framvegis kosta 5.650 og tenging með allt að 1 Mbps hraða og 1000 MB niðurhali frá útlöndum mun framvegis kosta 8.300 á mánuði.



Með þessum breytingum er verið að einfalda gjaldskrá og örbylgjutengingar taka nú meira mið af verðskrá fyrir ADSL-sítenginar en áður. Nýlegar breytingar Símans á verðskrá sinni hafa ekki áhrif á þjónustuna, enda koma þær ekki til lækkunar á kostnaðarliðum nema að mjög litlu leyti. Vinsældir á örbylgjutengingum hafa verið nokkuð meiri en ráð var fyrir gert og m.a. vegna þess hefur þurft að fara örar í fjárfestingu vegna þeirra en áætlanir gerðu ráð fyrir, t.d. hvað varðar stækkanir á samböndum. Örbylgjutengingar Snerpu hafa einnig þann kost að víða í dreifbýli hafa opnast möguleikar, sem ekki bjóðast í ADSL-samböndum, t.d. er nú fjöldi sveitabæja tengdur inn á kerfið, en þeir hafa ekki átt möguleika á að nýta sér ADSL þar sem það hefur verið tengt, því að ADSL getur ekki borið sambandið jafn langar vegalengdir og örbylgjusambönd gera. Til dæmis er nú fjöldi sveitabæja í Dýrafirði, Önundarfirði og Steingrímsfirði tengdur inn á örbylgjunet Snerpu.



Hafin verður örbylgjuþjónusta á Þórshöfn og Bíldudal innan skamms og er einnig í undirbúningi stækkun á samböndum til Flateyrar og Þingeyrar.
...
Meira
Þann 26. janúar kl. 23:48 var stöðvað hjá Snerpu fyrsta eintakið af nýjum ormi sem hefur hlotið heitið I-Worm.Novarg hjá Kaspersky Antivirus. Á hádegi í dag var búið að stöðva um 4000 eintök. Ormurinn er einnig þekktur undir nafninu Mydoom. Fyrsta sólarhringinn dreifði þessi ormur sér á yfir 300.000 tölvur um allan heim á einungis nokkrum klukkustundum. Þetta er stærsta smitun á einum ormi í ár og sýnir öll merki þess að geta slegið metið sem Sobig ormurinn setti í fyrra, en þegar mest var fór hlutfall smitaðra tölvupósta í 70% - Á hádegi sama dag er hlutfall pósts sem smitaður er af Novarg orminum komið í 17,25% og fer hækkandi. Áður en ormurinn birtist var hlutfall smitaðra skeyta innan við hálft prósent.



Þessi sprenging í framleiðslu og dreifingu á tölvuvírusum og ormum bendir til ákveðins ásetnings hjá höfundum þeirra. Það innifelur m.a. í sér að dreifingaraðferðin einkennist af því að fyrst er búinn til hópur af smituðum tölvum með lágu sýkingarstigi. Þegar fjöldi smitaðra véla nær tilteknu marki fer af stað dreifing í stórum stíl. Þetta er sama aðferð og var notuð til að dreifa Sobig.F orminum í fyrra.



Kaspersky Labs hafa skoðað landfræðilega dreifingu Novarg og bendir hún til þess að hann sé upprunninn í Rússlandi. Novarg dreifir sér á tvo vegu, með tölvupósti og með Kazaa skrádeilikerfinu....
Meira
Ákveðið hefur verið að fella niður 6.000 kr. stofngjald á ADSL-línum dagana 16.-19. janúar. Snerpa býður notendum sem notfæra sér þetta tilboð eða færa ADSL-tengingu sína til Snerpu frá samkeppnisaðilum að fá ADSL-tengingu með 1 GB erlendu niðurhali frítt út febrúar. Nú er um að gera að vera ekki að ergja sig lengur og hoppa á gott samband.

Sjá nánar um ADSL hjá Snerpu hér.

Snerpa hefur framlengt þetta tilboð til 23. janúar, þ.e. áskriftarhluta þess en nýir áskrifendur þurfa að greiða stofngjald til Símans....
Meira
Í dag og síðustu daga hafa færst yfir 30 viðskiptavinir í lénhýsingu hjá Snerpu. Þeir voru áður tengdir hjá Tvíund ehf. og eru hér með boðnir velkomnir. Forráðamenn Tvíundar ákváðu í haust að hætta rekstri, og var samið við Snerpu um að taka við honum.



Sífellt stærri hluti viðskiptavina kemur nú annars staðar að en frá Vestfjörðum. Notendum hefur jafnframt fjölgað um 30% sl. tvö ár og er um helmingur aukningarinnar utan Vestfjarða. Á myndinni hér til hliðar sést m.a. að um leið og ISDN-tengingum (græn lína) hefur fækkað, hefur ADSL-notendum (blá lína) fjölgað að sama skapi. Rauða línan er heildarfjöldi notenda og brúna línan er fjöldi þeirra sem geta tengst á mótaldi. Ekki er talin með í þessu grafi sú mikla aukning sem hefur orðið á notendum í INmobil þjónustunni en þar eru í sambandi um 1.000 sjómenn sem Snerpa sér um þjónustu fyrir í samstarfi við Radiomiðun ehf....
Meira
Stekkjastaur kom fyrstur,

stinnur eins og tré.

Hann laumaðist í fjárhúsin

og lék á bóndans fé.



Hann vildi sjúga ærnar,

-þá varð þeim ekki um sel,

því greyið hafði staurfætur,

-það gekk nú ekki vel.



(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)...
Meira
Fyrirtækin Radiomiðun og Snerpa, sem í sameiningu reka gagnaflutnings og tölvupóstkerfið INmobil fyrir skip á hafi úti hafa nú tekið í gagnið nýja þjónustu hjá Iridium gervihnattafyrirtækinu. Þjónustunni hefur verið gefið nafnið Iridium Data2 og vísar það til þess að um er að ræða aðra kynslóð í gagnaflutningum yfir Iridium sambönd....
Meira
Hlutfall ruslpósts ágerist nú sem aldrei fyrr og er nú svo komið að yfir 80% pósts er ruslpóstur. Þrátt fyrir öflugar ruslpóstvarnir, hafa notendur Snerpu að einhverju leyti orðið varir við þetta undanfarnar vikur, en nú breytum við enn vörn í sókn. Við höfum eflt ruslpóstvarnir okkar enn frekar og munum hvergi láta okkur í baráttunni. Til gamans bendum við hér á vefslóðina http://www.postini.com/stats/ þar sem sjá má m.a. hvaðan ruslpósturinn kemur.



Jafnvel þó að við gerum okkar besta, er alltaf hætta á að ruslpóstur sleppi í gegn, því að ef sían er höfð of öflug, er hætta á því að póstur sem ekki er ruslpóstur, sé hindraður....
Meira
Fyrir réttum níu árum, þegar Pentium 75 Mhz tölvur og 28.800 bita mótöld voru nýjasta græjan á markaðnum kostaði innhringitenging um mótald yfir tvö þúsund krónur á mánuði. Landssíminn skipti landinu í mörg gjaldsvæði og dýrt var að hringja á milli landshluta. Þá sáu þeir Jón Arnar og Björn tækifæri til að stofna fyrirtæki og Internetþjónustu til að lækka símreikninga notenda sem þá voru að byrja að notfæra sér undraheima Internetsins. Fyrirtækið Snerpa var stofnað 25. nóvember 1994 og hóf rekstur Internetþjónustu í ágúst árið eftir.



Í tilefni þessa viðburðar efnum við til kynningar á starfsemi fyrirtækisins og verðum með Opið hús þar sem þjónustan verður kynnt. Einnig munu heimsækja okkur gestir frá helstu samstarfsaðilum okkar, s.s. Opnum kerfum, Tölvudreifingu, Icecom og Radiomiðun. Við erum með sýningu á vörum og þjónustu frá þessum samstarfsaðilum og heitt á könnunni út þessa viku.



Einnig mun Snerpa kynna þær vörur og þjónustu sem fyrirtækið býður upp á, INmobil, INfilter, Internetsambönd, örbylgjusambönd, veiruvarnir og fleira....
Meira
Snerpa hefur nú gengið frá beintengingu við Línu.net um RIX netskiptistöðina. Þar með er Snerpa komin með beintengingu við allar sjálfstæðar Internetveitur (e. autonomous systems) á Íslandi. Beintenging þýðir að milliliðalaust samband er sett upp þannig að komi upp truflanir í samskiptum við eina netveitu, að þá eru áhrif þeirra einungis bundin við viðkomandi netveitu en sé ekki um beintengingu að ræða þá er tengingu beint um aðrar netveitur og truflanir í slíkum tilfellum verða þá umfangsmeiri. Netveitur hér á landi nota allar að einhverju leyti óbeinar tengingar sín á milli en Snerpa er fyrsta netveitan hérlendis sem kemur á beintengingu við allar sjálfstæðar netveitur.



Tilgangurinn með beintengingu er að dreifa álagi betur, auka rekstraröryggi og auka gæði netsambanda. Í rekstri stórra netkerfa koma ávallt upp aðstæður þar sem þarf að rekja orsakir truflana og með því að setja upp beintengingar er umfang slíkra truflana lágmarkað og bilanagreining einfölduð. Einnig flæðir umferð beint á milli kerfa í stað þess að fara um netkerfi þriðja aðila og lækkar það jafnframt umferðartíma og bætir nýtingu netsambanda.



Um beintenginguna við Línu.Net er einnig með skömmum fyrirvara hægt að tengjast til útlanda um útlandasamband Línu.Nets....
Meira
Notendur sem tengjast með mótaldi eru beðnir að athuga að við höfum sett upp mótöld á sama númeri og notað er fyrir ISDN sem er 456-5371. Þessvegna þurfa notendur nú að breyta hjá sér númerinu sem hringt er í og nota 456-5371 framvegis. Þetta á þó ekki við um notendur sem tengjast frá skipum. Eldra númerið (456-5441) verður virkt áfram en línum verður fækkað þar eftir því sem notendur færa sig yfir á nýja númerið. Við munum í framhaldinu aðstoða þá notendur sem við sjáum að eru að nota eldra númerið áfram eftir því sem tilefni gefst til....
Meira
Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00