A A A

ADSL

Ath. Tilgreint verð innifelur 25,5% vsk.

Tekur gildi frá og með 1. janúar 2011 fyrir nýjar/breyttar áskriftir, frá 1. febrúar 2011 fyrir eldri áskriftir.

 ADSL-netþjónusta um net Símans að 12 Mbit

  Mánaðargjald
 xSi1 - 12 Mb hraði / 1 GB erlent niðurhal - frítt innanlands   3.185 kr. 
 xSi2 - 12 Mb hraði / 10 GB erlent niðurhal - frítt innanlands   4.375 kr. 
 xSi3 - 12 Mb hraði / 40 GB erlent niðurhal - frítt innanlands   6.550 kr. 
 xSi4 - 12 Mb hraði / 100 GB erlent niðurhal - frítt innanlands   8.990 kr. 
 ADSL - Viðbótar niðurhal - 10 GB pakki   1.700 kr. 
 ADSL - Stofngjald / flutningsgjald (fellur niður við bindisamning)
6.048 kr. 

ADSL-samband (lína) frá Símanum er innifalin. Hægt er að leigja ADSL-beini frá Símanum og innheimtist þá á símreikningi kostnaður vegna þess. Stofngjöld og flutningsgjöld falla niður sé gerður 6 mánaða bindisamningur. Sé farið yfir úthlutað gagnamagn bætist sjálfkrafa við áskrift viðbótarniðurhal 10 GB. Um þessi sambönd er hægt að nota ADSL-sjónvarp (IPTV) frá Símanum á þeim stöðum þar sem Síminn hefur það í boði.

 ADSL-netþjónusta án línu

  Mánaðargjald
 xSi40 - 40 GB erlent niðurhal án línu - frítt innanlands   3.990 kr. 



ADSL-netþjónusta á heimasvæði Snerpu að 16 Mbit

  Mánaðargjald
A1 - 16 Mb hraði / 10 GB erlent niðurhal - frítt innanlands
  3.990 kr. 
A2 - 16 Mb hraði / 20 GB erlent niðurhal - frítt innanlands
  4.990 kr. 
A3 - 16 Mb hraði / 40 GB erlent niðurhal - frítt innanlands
  5.990 kr. 
A4 - 16 Mb hraði / 100 GB erlent niðurhal - frítt innanlands
  7.990 kr. 
 ADSL - Viðbótar niðurhal - 10 GB pakki   1.700 kr. 
 ADSL - Viðbótar upphraði (Annex M) 2,5 Mb
  3.890 kr. 
 ADSL - Stofngjald / flutningsgjald (fellur niður við bindisamning)
6.048 kr. 

ADSL-samband (lína) frá Snerpu er innifalin. Hægt er að kaupa eða leigja ADSL-beini frá Snerpu og er 450 kr. gjald vegna leigu innheimt með áskrift. Sé farið yfir úthlutað gagnamagn bætist sjálfkrafa við áskrift viðbótarniðurhal 10 GB. Heimasvæði Snerpu er Ísafjörður utan Holtahverfis, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri og Bíldudalur.

Með öllum ADSL-tengingum fylgir föst IP-tala, 100 MB* pósthólf, ruslpóstsía og aðgangur að vefpósti. Með heimilistengingum fylgja einnig allt að 4 aukanetföng (5 alls) hvert um sig með 100 MB* geymsluplássi. Ekkert stofngjald. Réttur til að setja upp persónulega heimasíðu með allt að 50 MB af efni undir slóðinni http://notendur.snerpa.is/(notandanafn). Hraði ADSL-tengingar er tilgreindur sem hámarksafköst. Gæði línu, búnaður, fjarlægð frá símstöð og aðrar þjónustur, t.d. truflanir á þráðlausu neti innanhúss, geta haft áhrif á raunhraða viðskiptavinar.
* Hægt er að fá pósthólf stækkuð í samanlagt allt að 2 GB án aukakostnaðar en biðja þarf um stækkun í netfang support@snerpa.is

Greiðslur

Greitt er fyrir hvern mánuð fyrirfram. Gjalddagi er í upphafi hvers mánaðar. Áskilinn er réttur til að loka fyrir notkun netfangs við vanskil.  Ef greitt er eftir eindaga leggst við vanskilagjald. 10 dögum eftir eindaga er sent viðvörunarbréf frá banka. 20 dögum eftir eindaga eru vanskil send til frekari innheimtu hjá Motus.

Breytingar / Uppsögn netáskriftar

Viðbótarniðurhal á nýjum ADSL áskriftarleiðum er breytt sjálfkrafa, þ.e. bætt við í viðkomandi mánuði ef farið er yfir innifalið gagnamagn. Sendir eru út reikningar aukalega vegna viðbótarniðurhals. Ef bæta á við fast niðurhal (breyta áskriftarleið), skal tilkynna það í tölvupósti ekki síðar en 20. þess mánaðar sem breytingin á að taka gildi. Ef segja á upp netaðgangi, minnka fast niðurhal eða fá aðgangi lokað í tiltekinn tíma er nauðsynlegt að tilkynna það a.m.k. 15 dögum áður en breyting á að taka gildi og gera það skriflega þ.e. annað hvort í tölvupósti, eða í verslun Snerpu. Alltaf er miðað við mánaðamót. Ef þetta er ekki gert er sendur út reikningur fyrir komandi mánuð. Að greiða ekki reikning jafngildir ekki uppsögn netfangs og helst greiðsluskylda, jafnvel þó netfangi hafi verið lokað vegna vangoldinna netfangagjalda.

Riftun bindisamnings

Notanda er heimilt að rifta bindisamningi vegna ADSL-tenginga einhliða. Skal hann þá greiða gjald vegna umsaminnar áskriftar út binditímann. Leiga fyrir beini eða annan búnað innheimtist fyrir hvern byrjaðan mánuð þann tíma sem hann er í vörslu áskrifanda.

Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirđi | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opiđ alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00