A A A

Örbylgja

Netþjónusta á örbylgjusamböndum

Mánaðargjald
Umfrgj. pr. MB
1,25 GB útlandaniðurhal - ómælt innanlands 3.327 kr 2,20 kr

Ath.: Örbylgjusamband Snerpu er ekki innifalið. Verð á örbylgjusambandi fer eftir hámarkshraða tengingar og þarf að bæta því við valda netþjónustu.

Örbylgjusambönd

Mánaðargjald
Hámarkshraði 2 Mbps til notanda 1 Mbps frá notanda 3.629 kr

Búnaður fyrir örbylgjusambönd

Verð
XI-500 staðlaður endabúnaður fyrir ethernet 16.900 kr
Sérlausnir fyrir lengri vegalengdir allt að 20 km í sjónlínu Tilboð

Með öllum örbylgjutengingum fylgir föst IP-tala, 50 MB pósthólf, ruslpóstsía og aðgangur að vefpósti. Með heimilistengingum fylgja einnig allt að 4 aukanetföng (5 alls) hvert um sig með 50 MB geymsluplássi. Ekkert stofngjald. Réttur til að setja upp persónulega heimasíðu með allt að 20 mb af efni undir slóðinni http://notendur.snerpa.is/(netfang) .

Staðsetning þjónustunnar

Örbylgjuþjónusta Snerpu er boðin í Dýrafirði.

Greiðslur

Greitt er fyrir hvern mánuð fyrirfram. Gjalddagi er í upphafi hvers mánaðar. Áskilinn er réttur til að loka fyrir notkun netfangs við vanskil.  Ef greitt er eftir eindaga leggst við vanskilagjald. 10 dögum eftir eindaga er sent viðvörunarbréf frá banka. 20 dögum eftir eindaga eru vanskil send til frekari innheimtu hjá Motus.

Uppsögn netfangs

Ef segja á upp netaðgangi eða fá honum lokað í tiltekinn tíma er nauðsynlegt að tilkynna það a.m.k. 15 dögum áður en lokunin á að taka gildi og gera það skriflega þ.e. annað hvort í tölvupósti, eða í verslun Snerpu. Alltaf er miðað við mánaðamót. Ef þetta er ekki gert er sendur út reikningur fyrir komandi mánuð. Að greiða ekki reikning jafngildir ekki uppsögn netfangs og helst greiðsluskylda, jafnvel þó netfangi hafi verið lokað vegna vangoldinna netfangagjalda.

Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00