- 1.
 - Tristran háði bardagann
 - við heiðinn hund.
 - Þar hlaut margur blóðuga und
 - af þeirra fund.
 - - Þeim var ekki skapað nema að skilja.
 
- 2.
 - Þá var hann á skildi borinn,
 - sá ungi mann.
 - Margur bauð sinn læknarinn
 - að græða hann.
 
- 3.
 - Hann vill ekki græðslu þiggja,
 - hann sór við trú:
 - "utan hún Ísodd græði mig
 - sú bjarta frú."
 
- 4.
 - Tristran sendi sína menn
 - og skeiður þrjár:
 - "Segið henni björtu Ísodd
 - eg sé sár."
 
- 5.
 - Tristran sendi sína menn
 - og skeiður fimm:
 - "Segið henni björtu Ísödd
 - hún komi á fundinn minn.
 
- 6.
 - Svo skal búa hennar ferð
 - sem segi eg frá:
 - Blá skulu segl á skipunum
 - sem hún er á."
 
- 7.
 - Fram komu þeir sendimenn
 - og sögðu frá:
 - "Tristran ungi vildi yðar
 - fundi ná."
 
- 8.
 - Ísodd sig í höllina gekk
 - fyrir kónginn sinn:
 - "Villtu ekki láta græða hann Tristran,
 - frænda þinn?"
 
- 9.
 - Til orða tók hann kóngurinn
 - og varð við reiður:
 - "Hann þarf ekki græðslu við,
 - því að hann er feigur."
 
- 10.
 - Svo var henni björtu Ísodd
 - mjúkt til máls,
 - báðar lagði hún hendurnar
 - um kóngsins háls.
 
- 11.
 - "Gjarnan vilda eg láta græða Tristran
 - af sárri und,
 - ef eg vissi að þú kæmir heil aftur
 - á minn fund.
 
- 12.
 - "Guð má ráða afturkomu"
 - sagði frú,
 - "ei mun eg í þessari ferð
 - gleyma minni trú"
 
- 13.
 - Kastaði hún yfir sig safalaskinni
 - með sorg og sút.
 - Síðan gekk hin ríka frú
 - á bryggjur út.
 
- 14.
 - "Svo skal búa um mín ferð
 - sem segi eg frá.
 - Blá skulu segl á skipinu,
 - sem eg er á."
 
- 15.
 - Vindið upp segl við húna.
 - sem frúin bauð.
 - Hitta vill hún Tristran unga
 - í sinni nauð.
 
- 16.
 - Til orða tók hún svarta Ísodd
 - að hún gekk inn:
 - "Svört eru segl á skipunum,
 - sem hér leggja inn."
 
- 17.
 - Til orða tók hún svarta Ísodd
 - í annað sinn:
 - "Svört eru segl á skipunum,
 - sem hér leggja inn."
 
- 18.
 - Til orða tók hún svarta Ísodd
 - hún sagði frá:
 - "Svört eru segl á skipunum,
 - en ekki blá."
 
- 19.
 - Tristran snerist til veggjar
 - svo hart hann stakk:
 - heyra mátti mílur þrjár,
 - hans hjartað sprakk.
 
- 20.
 - Lenda þau skipunum
 - við svartan sand,
 - báru hana björtu Ísodd
 - fyrst á land.
 
- 21.
 - Löng var leiðin,
 - en gatan var breið.
 - Einatt heyrði hún klukknahljóð
 - á sinni leið.
 
- 22.
 - Löng var leiðin,
 - en gatan var þröng.
 - Einatt heyrði hún klukknahljóð
 - og fagran söng.
 
- 23.
 - Til orða tók hún bjarta Ísodd,
 - hún leit í stein:
 - "Ekki skyldi hann Tristran dauður,
 - þá eg kem heim."
 
- 24.
 - Ísodd sig í kirkjuna gekk
 - með hundrað manns.
 - Prestar sungu prócessíu
 - yfir líki hans.
 
- 25.
 - Ísodd niður að líki lýtur
 - rauð sem rós.
 - Prestar stóðu á kirkjugólfi
 - með kertaljós.
 
- 26.
 - Ísodd niður að líki lýtur
 - í annað sinn.
 - Prestar stóðu á kirkjugólfi
 - með kertaljósin fimm.
 
- 27.
 - Margur lifir í heiminum
 - með minni nauð.
 - Hún Ísodd niður að líki lýtur
 - og lá þá dauð.
 
- 28.
 - Það var henni svörtu ísodd
 - angur og sút,
 - tvö voru þá líkin borin
 - úr kirkju út.
 
- 29.
 - Til orða tók hún svarta ísodd
 - hún sór við trú:
 - "Þið skulið ekki njótast dauð,
 - megi eg nú."
 
- 30.
 - Ausin voru þau moldunni
 - fljótt og ótt.
 - Sínu megin kirkjunnar
 - lá þá hvort.
 
- 31.
 - Runnu upp af leiðum þeirra
 - lundar tveir.
 - Upp af miðri kirkjunni
 - mætast þeir.
 - - Þeim var ekki skapað nema að skilja.
 
Tristranskvæði kemur frá Rósu Dögg Jónsdóttur frá Bíldudal, nemanda við Menntaskólann á Akureyri