Jáson hét unglingspiltur einn, heldur fáráđlingur međ stóru skarđi í efri vörinni og öđru minna í neđri vörinni; var samtíđis Snorra Jónssyni međhjálpara og hreppstjóra á Lónshúsum. Jáson var bróđir Ţorbergs bónda á Stafnesi. Ţessi Jáson andađist og var grafinn ađ Hvalsnesskirkju.Ţá bjó sá mađur í Glaumbć í Stafneshverfinu er Ţórarinn hét. Síra Gestur var ţá prestur á Hvalsnesi. Hann kom út úr bćnum um vökuna og sér hvar tveir menn eru ađ glíma í kirkjugarđinum.
Prestur gengur ţangađ og sér hvađ um er ađ vera; er ţar Ţórarinn og Jáson nćrri ţví búinn ađ drepa hann. Gestur prestur bjargađi Ţórarni og kom Jásyni frá honum.
Ţórarinn hafđi vakiđ Jáson upp og sent hann eftir peningum; var hann ţá aftur kominn. Sagt er ađ síra Gestur muni hafa tekiđ til sín meginiđ af peningunum.
Ţórarinn bjó í Glaumbć eftir ţetta og hét Ingibjörg kona hans. Oft féll hann niđur međ frođufalli ţegar hann var inni, vakandi sem sofandi, en áđur en hann fekk köstin sá Ingibjörg altíđ skyggja fyri gluggann, en aldrei fekk hann ţau er hann var á gangi.
Ingibjörg var ćttuđ úr Norđurlandi. Ólafur gamli Gestsson í Landeyjum var sonur síra Gests.
(Ţjóđsagnasafn Jóns Árnasonar)
Netútgáfan - mars 2001