GALDRAMENN  -  EIRÍKUR  Í  VOGSÓSUM


======================




BRENNIVÍNSKVARTÉLIN



Einu sinni kom mađur ađ Vogsósum sem hét Brynjólfur og var bóndi í Vćlugerđi í Flóa. Hann hafđi hrennivín á einum hestinum ţví hann kom utan úr Keflavík og ćtlađi heim međ lest mikla.

Eiríkur bađ hann ađ gefa sér í staupinu. Brynjólfur tímdi ţví ekki og neitađi ţví og hélt áfram austur ađ Ölfusá.

Hann ćtlađi yfir um á Óseyri, en hesturinn sem brennivínskvartélin voru á fćldist, hljóp fram af bakka í hyl í ánni og setti af sér baggana og sneri svo til sama lands aftur.

Brynjólfur sér ađ kvartélin eru töpuđ og heldur heim, en daginn eftir rak bćđi kvartélin á Vogsósafjöru og voru ţau óskemmd. Eiríkur prestur hirti kvartélin og tćmdi ţau.

Síđan gjörđi hann Brynjólfi orđ um ađ kvartélin hans hefđi rekiđ hjá sér og hefđi hann hirt ţađ sem í ţeim var, en kvartélin sjálf geymdi hann ţangađ til ţeirra vćri vitjađ.



(Ţjóđsagnasafn Jóns Árnasonar)

Netútgáfan - september 2001