gallery slunkaríki
Aðalstræti 22 400 Ísafjörður Iceland Tel: 456 4731
Einar Ólafsson arkitekt FAÍ heldur sýningu 27. mars - 14. apríl. Sýningin verður opnuð miðvikudaginn 27.mars kl. 16:00 og verður opin fimmmtudaga til sunnudaga frá 16:00 - 18:00.
Þetta er fyrsta einkasýning Einars og mun hann sýna lokaverkefni sitt, ráðstefnumiðstöð og tónleikasal úr meistarnámi í arkitektúr sem hann lauk í desember á síðasta ári. Að auki mun Einar sýna hægindastólinn "Dropa" sem hefur hlotið hönnunarviðurkenningu og er núna í framleiðslu og sölu á Íslandi. Einar mun einnig sýna verk á tölvuskjá sem hafa verið unnin í tölvu á undanförnum árum, meðal annars eru hreyfimyndir og aðrar þrívíðar myndir af verkum hans.
Einar hóf nám í arkitektúr árið 1989 við Arizona State University í Phoenix í Arizona fylki í Bandaríkjunum. Hann lauk B.S. gráðu með láði frá þeim skóla 1984. Hann vann síðan á ýmsum hönnunarstofum frá 1984 - 2000 eða þangað til hann fór í meistaranám í arkitektúr við University of Miami í Florida í Bandaríkjunum. Hann útskrifaðist þaðan með hæstu einkunn útskriftarnema í desember 2001. Einar vinnur nú á arkitektastofunni Arkís í Reykjavík.