| Slunkaríki Ísafirði Sýning Óskar Vilhjálmsdóttur LANDNÁM
Í Slunkaríki hefur gengið á ýmsu undanfarna daga, listhúsið fylltist af gaddfreðnu mótatimbri, ungt og tápmikið fólk tók til við að saga og smíða. Útúr þessu varð hið myndarlegasta hýsi og lýstu starfsmenn Svæðisútvarpsins, sem eru næstu nágrannar Slunkaríkis, smíðinni við dúfnakofa, hvernig sem því ber að taka. Inni í húsinu er sjónvarpsskjár, þar sjást börn frá Ísafirði og Flateyri lýsa draumahúsinu sínu og sum þeirra tala um leynistaði uppi í fjalli. Þau ræða um kosti og galla samfélagsins, um það hvað það sé að eiga heima einhvers staðar. Flest vilja þau hafa arinn í stofunni og stóran garð og rólur í garðinum og sundlaug; stór stofa með stórum gluggum og sóffinn fyrir framan sjónvarpið. Mörg þeirra vilja alltaf eiga heima á Flateyri eða Ísafirði en nokkur þeirra gætu þó vel hugsað sér að hafa sitt hús á Kanaríeyjum eða í Ástralíu. Niðri í kjallara eru ljósmyndir Óskar Vilhjálmsdóttur af húsum í bænum. Hún hugsar sýninguna sem þátt í viðmiklu verki sem hún kallar Landnám |