gallery slunkaríki

Aðalstræti 22 – 400 Ísafjörður – Iceland – Tel: 456 4418

 

 

Fréttatilkynning

Ragnhildur Stefánsdóttir myndhöggvari opnar sýningu á verkum sínum laugardaginn 17. mars í Slunkaríki á Ísafirði. Hún nam myndlist við Myndlista-og handíðaskóli, Minneapolis College of Art and Design og Carnegie-Mellon University Pennsylvania.

Einkasýningar Ragnhildar eru á annan tug hér heima og erlendis og var hún með einkasýningu í Slunkaríki árið 1997, en samsýningarnar fylla hinsvegar þriðja tuginn. Verk Ragnhildar má sjá víða í opinberi eigu og söfnum.


Sýningin hefst kl. 16 og eru allir velkomnir. Slunkaríki er opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 16 – 18.

Skynjun 1998
Trefjaplast
Hæð: 6 m.