gallery slunkaríki
Aðalstræti 22 – 400 Ísafjörður – Iceland – Tel: 456 4731

Laugardaginn 13. október kl. 16 var opnuð sýning á verkum Vignis Jóhannssonar í Slunkaríki á Ísafirði.

Hann nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og í Rhode Island School of Design í Bandaríkjunum. (ferilsskrá)

Auk þáttöku í fjölda samsýninga eru einkasýningar Vignis orðnar fjölmargar hér heima og erlendis og verk hans má víða sjá í opinberri eigu.

Á sýningunni í Slunkaríki sýnir hann samsett glerverk og sex lágmyndir úr kopar.


Slunkaríki er opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 16 – 18 og sýningu Vignis lýkur sunnudaginn 28. október.

 

Vatnið og tíminn

Tíminn er það fyrirbæri sem flæðir yfir okkur og tekur okkur með í ferð. Við útfall tímans verða eftir tímapollar í fjörulandsslaginu, þar til á næsta aðfalli tímans eru pollarnir opnir og sjálfstæðir en hafa að geyma liðinn tíma eða ábót á þann tíma sem við skynjum sem nútíma. Í birtunni endurvarpa þeir geislum staðar og núlíðandi stundar.

Nú erum við þar stödd, á þeim stað og á þeirri stundu.

Veraldartengd, hugræn upplifun af mismunandi ótengdum einingum sem þó eiga það sameiginlegt að vera á sama stað á sama tíma. Með innra ljósi og ótímasettum stað geta hughrifin orðið óbundin menningarstigi, trúarbrögðum eða öðru sem aðskilur.

Eigum upplifunina.

 

V.J.

 

vignir.jpg (37626 bytes)