Sýning í Slunkaríki 27. apríl - 12. maí 2002
170 x hringinn
Laugardaginn 27. apríl kl. 16:00 var opnuð sýningin "170 x hringinn"
í Slunkaríki á Ísafirði.
"170 x hringinn" er samsýning fjögurra starfandi
myndlistamanna sem allir eru
búsettir í Reykjavík. Þetta eru þau Björg Örvar, Gunnar Karlsson, Jón Axel
Björnsson og Valgarður Gunnarsson sem öll stunduðu saman nám í listmálun við
málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1975 -79.
Fjórmenningarnir hafa allir sýnt mikið
og víða á sínum ferli og eru í
fremstu röð íslenskra málara í dag, en þetta er í fyrsta sinn sem þau sýna
saman verk sín. Sýningin ber yfirskriftina "170 x hringinn",
en á sýningunni
verða sýnd ný olíumálverk í stærðinni 170cm x 170cm, eitt frá hverjum
listamanni.
Sýningin í Slunkaríki er annar viðkomustaður verkanna á leiðinni hringinn í
kringum landið, en verkin voru sýnd í Safnahúsinu í Borgarnesi síðastliðinn
marsmánuð við fádæma undirtektir. Fram eftir árinu 2002 verða þau síðan sett
upp á ýmsum menningarstöðum í landshlutunum fjórum.
Sýningin verður opin fimmmtudaga til sunnudaga frá 16:00 - 18:00 til12. maí.

Björg Örvar: Hvíldarstaður
2002 (olía á striga)

Gunnar Karlsson: Fallinn engill
2002 (olía á striga)

Jón Axel Björnsson: Án titils
2002 (olía á striga)

Valgarður Gunnarsson: Túttustýrið
2002 (olía á stirga)