Gunnar Karlsson

sýnir í Slunkaríki 4.-25. mars 2000

Slunkaríki sýnir málverk eftir Gunnar Karlsson í samstarfi við
Sólrisuhátíð. Gunnar stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og
Konunglegu listaakademíuna í Stokkhólmi, hann hefur haldið einkasýningar og
tekið þátt í fjölda samsýninga í gegnum árin. Gunnar mun sýna verkið
Triplex, þrískipt málverk frá árinu 1997.  Gunnar vakti athygli
Kringlugesta fyrir síðustu jól, en verk hans Kringlu-Kristur hékk uppi um
tíma í "musterinu" eða þangað til því var úthýst og það fékk húsaskjól í
fjárhúsi húsdýragarðsins í Reykjavík.
Sýningin hefst laugardaginn 4. mars kl. 16 og henni lýkur 25. mars.
Slunkaríki er opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 16 - 18.

triplex.jpg (33077 bytes)