„INNIHORN“

Hlíf Ásgrímsdóttir

sýnir í Slunkaríki 11. til 26. ágúst 2001

Þessi sýning er eins konar sjálfstætt framhald á sýningum mínum Innviðir í Norska húsinu í Stykkishólmi í fyrra og Innivera í Galleríi Sævars Karls í vor. Báðar sýningarnar byggja á sýningarrýminu sjálfu. Innsetningin í Stykkishólmi var með ljósmyndum, polaroidmyndum, vatnslitamyndum, texta, borði, brauði og smjöri en sýningin hjá Sævari Karli var af svipuðum toga en uppvafinni, teygðri og útblettaðri sæng bætt inn í myndina.
Í vatnslitamyndaröðinni styðst ég við ljósmyndir sem ég tók af sýningarrýminu. Síðan teikna ég nákvæma eftirlíkingu af innanhússrými kjallarans en leitast við að búa til ímyndað rými með því að nota symmetríuformið eða samhverfa samsetningu þannig að viðfangsefnið fær annan hugblæ en ljósmyndin. Til samanburðar bjó ég til ljósmyndaverk sem fjalla um horn í lofti, veggjum og gólfi kjallara Slunkaríkis.
Eftir umhugsum kviknaði hugmynd mín um að taka ljósmyndir af látlausum en jafnframt heimilislegum stað og bera saman við vatnslitamyndir af öllu innanstokks í kjallara Slunkaríkis. Ísskápurinn varð fyrir valinu og útbjó ég kyrralífsuppstillingu úr plastpokum og plastboxum inni í ísskápnum. Átta vatnslita/ljósmyndaverk þar sem borið er saman horn í vínkjallaranum og horn í hversdagslegum heimilisísskáp.

hlif1.jpg (10672 bytes)

hlif2.jpg (8305 bytes)

hlif3.jpg (9961 bytes)

hlif4.jpg (11660 bytes)

hlif5.jpg (9400 bytes)

hlif6.jpg (15028 bytes)


Verk á sýningu.
Fyrsta hæð.
Innihorn I.
Þrjú ljósmyndaverk sem fjallar um horn í lofti, veggjum og gólfi í kjallara Slunkaríkis. Ljósmyndir á filter, (58 x 52 cm, 2001, verð 30. þús.) x 3.
Fimm vatnslita/ljósmyndaverk þar sem borin eru saman ljósmynd af rýminu og ímyndað vatnslitað rými á pappír.
Vatnslitamynd og ljósmynd (52 x 69 cm / 15 x 21 cm, 2001, verð 55 þús.) x 5.
Kjallari.
Innihorn II.
Fjögur vatnslita/ljósmyndaverk þar sem borin eru saman horn í vínkjallaranum og horn í hversdagslegum heimilisísskáp.
Tvær vatnslitamyndir og tvær ljósmyndir (31 x 48 cm og 33 x 48 cm, 2001 / 10 x 15 cm og 15 x 21 cm, 2001 verð 60 þús.) x 4.

Hlíf Ásgrímsdóttir
netfang: hlifas@simnet.is

Nám:
1987 – 1991 Myndlista- og handíðaskóli Íslands
1994 – 1996 Kuvataideakatemia (Bildkonstakademin) Helsinki, Finnland

Einkasýningar:
2001 Innihorn. Slunkaríki, Ísafjörður
2001 Innivera. Gallerí Sævars Karls, Reykjavík
2000 Innviðir. Norska húsið, Stykkishólmur
2000 Tilfinningar. Gamla sundlaugin, Álafosskvos, Mosfellsbær
1999 Fljótandi sköpunarkraftur. Listasafn ASÍ, Reykjavík
1998    Blátt haf. Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Keflavík
1994 Sólartákn og jafndægur. Stöðlakot, Reykjavík

Samsýningar:
2001 2nd International biennial new Watercolour. Kleinsassen, Þýskaland
2000 Akvarell Ísland 2000. Hafnarborg, Hafnarfjörður
1999 Tabula non rasa. Hafnarborg, Hafnarfjörður
1998 - ´99 Nordisk Akvarell – 98. Farandsýning á vegum Waldemarsudde, Svíþjóð
1998 Tími/rými. Nýlistasafnið, Reykjavík
1997 Óðurinn til sauðkindarinnar. Listasafn ASÍ, Reykjavík    
1996    Small Graphic Forms – 96. Lodz, Pólland
1995 – ´96 920 Millibör. Listasafn Færeyja, Þórshöfn, Færeyjar;
    Norræna Húsið, Reykjavík;
    Nunatta Atuagaateqarfia, Nuuk, Grænland
1995 Hyonteisooppera. Gallery G, Helsinki, Finnland
1995 Whore academy. MUU ry, Theatre museum, Helsinki, Finnland
1995 The 6th biennial of young Nordic Art and the 6th triennial of young Baltic Art.
Contemporary Art Centre of Vilnius, Litháen
1994 Change places. Kuvataideakatemia Galleria, Helsinki, Finnland
1994 – ’95 Aurora 6 - Norrsken. Göteborgs Konstmuseum, Gautaborg, Svíþjóð;
Nordisk Konstcentrum, Sveaborg, Finnland;
Wainö AAltosen Museo, Turku, Finnland
1992    Sumarsýning. Gallerí Hulduhólar, Mosfellsbær