Hlynur Hallsson

opnar sýninguna

"Þar – There – Dort"

á laugardaginn 15. desember kl. 4
í Slunkaríki Aðalstræti 22

Sýningin verður opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 4 - 6 e.h.
til 15. janúar 2002

Á sýningunni gefur að líta um 200 myndir með myndatextum. Myndirnar eru teknar úr dagblaðinu "Heilbronner Stimme" sem er gefið út í borginni Heilbronn í suðurhluta Þýskalands en myndatextarnir koma úr dagblaðinu "Degi" frá Akureyri sem hætti að
koma út fyrr á árinu. Textar og myndir eru rifin úr samhengi og passa því ekki saman, þannig að ný tengsl myndast. Áhorfendur geta fundið út nýja þýðingu úr myndatextum sem virðast við fyrstu sýn vera á röngum stað og myndir birtast í nýju ljósi. Það sama gildir um 20 mínútna myndband sem Hlynur hefur sett saman. Þar gefur að líta fréttamyndir frá fréttaútsendingum frá CNN, Sky, BBC World, Stöð 2 og Ríkissjónvarpinu. Tal þulanna passar engan vegin við fréttamyndirnar og þar með er
vanalegur máti hlustunar og sjónar áhorfandans raskað og við lesum myndirnar á nýjan hátt og leggjum annan skilning í tal fréttaþulanna. Tónlistarmaðurinn Pétur Eyvindsson gerði tónlist við myndbandið.

Í verkum sínum rannsakar Hlynur gjarnan tengsl fólks með ólíkan bakgrunn og skoðar hvað það er sem tengir fólk eða sundrar því. Samskipti af öllum toga koma þar við sögu sem og samskiptaleysi. Sýningin var sett upp fyrr á árinu í "Kunstverein Heilbronn" í Þýskalandi og vakti þá mikla athygli. Hlynur gaf út sérstakt "dagblað" í tilefni sýningarinnar, þar sem einungis gefur
að líta myndir og myndatexta en allur megintexti er felldur út. Myndatextarnir eru á þremur tungumálum, íslensku, þýsku og ensku sem liggja eins og rauður þráður í gegnum mörg verka Hlyns.

Sýningargestir í Slúnkaríki geta tekið blaðið með sér heim en auk þess fengið sér sæti og flett öðrum blöðum, bæklingum og tímaritum milli þess sem myndir eru lesnar og textar skoðaðir.

Hlynur Hallsson er fæddur á Akureyri 1968, útskrifaðist frá MHÍ 1993 og stundaði framhaldsnám í myndlist í Þýskalandi. Hann hefur verið búsettur í Hannover í rúm átta ár en býr nú á Akureyri og í Hannover. Hann var tilnefndur menningaverðlana DV fyrir
verk sitt "Dagbók/Veg(g)ir" á Kjarvalsstöðum og nýverið hlaut hann verðlaun ungra myndlistarmanna í Neðra Saxlandi sem veitt eru af menntamálaráðuneytinu þar.

Á opnuninni í Slúnkaríki fremur Hlynur gjörninginn "Lesa, tala – Lesen, sprechen – Read, talk" og svo verður poppað, litið í blöðin, horft á sjónvarp og opnaðir gluggar.

Raftækjaverslunin Straumur lánar DVD og sjónvarp.    Æviferill

Hlynur2.jpg (32312 bytes)

Hlynur8.jpg (23989 bytes)

Hlynur3.jpg (32448 bytes)

Hlynur4.jpg (29396 bytes)

hlynur11.jpg (20350 bytes)

hlynur22.jpg (18057 bytes)

hlynur33.jpg (15906 bytes)

hlynur44.jpg (16470 bytes)

hlynur55.jpg (16247 bytes)

Hægt er að skoða önnur verk eftir Hlyn á eftirfarndi slóðum:
http://www.hallsson.net
http://www.kuckei-kuckei.de
http://www.endo.mpg.de/artproject
http://www.camp1.dk/lejre/0.html
http://www.simnet/guk/hlynur.htm