gallery slunkaríki Aðalstræti 22 400 Ísafjörður Sími: 456 4418 Fax.: - 456 4709
Fimmta alþingiskosningasýning Kristjáns Guðmundssonar í Slunkaríki 10. 25. maí 2003 Stöðugleiki, áræði og staðfesta einkenna áætlanagerðir stjórnar Slunkaríkis og myndlistamannsins Kristjáns Guðmundssonar sem opnar í fimmta sinn alþingiskosningasýningu í Slunkaríki á Ísafirði. Að þessu sinni er Kristján með grafíkmyndir í farteski sínu. Eiríkur hinn óþekkti Þessa skrýtlu, Sólons Guðmundssonar í Slunkaríki um Eirík nokkurn, er hægt að heimfæra upp á Kristján að öllu öðru leyti en því að listamaðurinn er nokkuð frægur, hann á að baki fjölda sýninga hér heima og í útlöndum. Eins og áður segir leggur stjórn Slunkaríkis ríka áherslu á stöðugleika og jafnvægi í málefnum sínum og landsmanna allra og eru alþingiskosningasýningar Kristjáns tillegg beggja aðila til að það markmið megi nást landi og lýð til heilla. Sýningin hefst 10. maí kl. 16 og eru allir velkomnir. Slunkaríki er opið fimmtudaga til sunnudags kl. 16 18. |