A A A

Internet

Snerpa býður upp á fjölbreytta Internetþjónustu.

Snerpa býður allar hefðbundnar tengingar eins og ADSL, ISDN eða módem um allt land. Einnig eru í boði VDSL2-tengingar og örbylgjutengingar við Internet á völdum stöðum.

Snerpa rekur Internetþjónustu með miðstöð á Ísafirði og hnútpunkta fyrir föst netsambönd í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, Þróunarsetri Vestfjarða, í Súðavík, Flateyri, Þingeyri, á Suðureyri og víðar. Netþjónustan hefur starfað síðan árið 1994 og er því sú elsta á landinu.


Að mestu er stuðst við tölvubúnað sem keyrir á Linux stýrikerfinu og er Linux notað í póstmiðlun, vefmiðlun, gagnasöfn og netstjórnun og raunar flest þau verkefni sem sinna þarf. Við rekum einnig Windows 2003 og 2008 netþjóna undir ýmsar gagnagrunnsþjónustur og sérhæfð verkefni. Vefir eru keyrðir á bæði Windows og Linux vef- og gagnagrunnsþjónum, en alls eru mörg hundruð vefþjónar keyrðir hjá Snerpu. Netbúnaður, þ.e. sá búnaður sem notaður er til stjórnunar á víðnetsumferð er nær eingöngu frá Cisco. Auk varaaflgjafa höfum við einnig öfluga dieselrafstöð sem hægt er að grípa til við straumrof.

Snerpa er tengd með 1 Gbps ljósleiðarasambandi inn á IP-net Símans og þar í gegn er m.a. tengingar við útlandagátt Landssímans. Einnig tenging við BRAS-búnað Símans og Snerpu en um hann er veitt öllum ADSL-tengingum. Þá er Snerpa sömuleiðis með búnað í símstöðvarbyggingum Mílu á Ísafirði og víðar og í skiptistöð innanlandsumferðar (RIX) í Tæknigarði og þar er skipst á netumferð við aðrar helstu íslenskar netveitur.

 

Snerpa býður ADSL og VDSL-tengingar um allt land á neti Símans þar sem einnig er víða hægt að fá sjónvarpsþjónustu yfir ADSL og einnig á eigin neti á nokkrum stöðum á Vestfjörðum. Mjög víða fæst sérhæfð þjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir, t.d. rútun neta yfir ADSL (sambærilegt við ADSL+ en ódýrara) og Annex.M aukinn upphraði allt að 2,5 Mbit á ADSL.

 

Innhringinúmer Snerpu fyrir mótöld og ISDN er 456-5371
Nafnaþjónar Snerpu eru 193.109.22.1 og 193.109.16.1

Klukkuþjónn (NTP): time0.snerpa.is

Innkomandi póstþjónn(POP3/IMAP): mail.snerpa.is

Útfarandi póstþjónn (SMTP): smtp.snerpa.is

 

Sendipósthús með auðkenningu: asmtp.snerpa.is port 587

IMAP sendipósthús: port 993 og SSL

 

Hraðamæling

 

Notkunarskilmálar

Öryggisstefna Snerpu

Kerfistilkynningar

Leiðbeiningar til notenda

Almennar takmarkanir á netumferð

Reglur um skráningu og upplýsingar úr annálum

Snerpa ehf | Mánagata 6, 400 Ísafirði | Sími: 520 4000 | Fax 520 4002 | SIP | Skype |Hafa samband | Vefumsjón
Opið alla virka daga 8:00-12:00 og 13:00-17:00