IPass
Internetaðgangur á staðarsímtali um allan heim
Nú býðst notendum okkar að notfæra sér þjónustu sem við bjóðum upp á í helstu þéttbýlissvæðum um allan heim, sem felst í því að þeir notendur Snerpu sem eru á ferðalagi erlendis geta tengt sig inn á Internetið svo að segja hvar sem er með lágmarkstilkostnaði. Við höfum gert reikisamninga við iPass, sem er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum um að notendur okkar geti nýtt sér yfir 3100 innhringihnúta í yfir 150 löndum um allan heim! Þessi kostur hentar ákaflega vel þeim notendum sem þurfa á áreiðanlegu sambandi að halda á ferðalögum en iPass velur einungis aðila sem njóta sérstaks trausts til samstarfs um innhringihnúta. Þannig eru t.d. þrjár netþjónustur á Íslandi sem geta boðið notendum sínum upp á hringja inn á iPass innhringihnúta en aðeins ein þeirra sem rekur innhringihnút fyrir iPass. Þessi eina er að sjálfsögðu Snerpa, en hinar tvær eru Margmiðlun og Skíma.Hvað þarf til að nýta sér þjónustuna?
Allt sem þú þarft er Internetaðgangur hjá Snerpu og iPass símaskrárhugbúnaður. Þrenns konar hugbúnaður er í boði: iPass Dial Wizard fyrir Windows 95, iPass Dial Wizard fyrir Macintosh eða Microsoft Connection Manager fyrir Windows 95 eða NT. Hugbúnaðurinn er einfaldur í notkun og gerir þér kleift að velja þér tengipunkt hvar sem þú ert staddur/stödd í heiminum og tekur það einungis fáeinar sekúndur. Snerpa útvegar hugbúnaðinn án nokkurra aukagjalda. Þú notar áfram sama notandanafn, sama lykilorð, póstforritið þitt eða vefpóst Snerpu og það eina sem þarf að huga að er, að á eftir notandanafninu er sett @snerpa.is og ef þú þarft að nota vefinn, þá aftengir þú proxy-stillinguna á meðan þú ert á ferðinni.Hverjir eru kostirnir?
- Gjald fyrir reikinotkun eru mun lægri en að nota millilandasímtal til að 'hringja heim' og tengjast.
- Meiri gæði á símasambandinu þegar þú tengist næsta innhringihnút.
- Pósturinn þinn flyst með þér hvar sem þú tengist.
- Fullur aðgangur að t.d. bæði pósti og vef.
- Greiðsla fyrir þjónustuna fer öll fram á sama stað.
Hvernig virkar reikiþjónusta?
iPass gerir samstarfssamninga við traustar netþjónustur um allan heim sem státa af hvað mestum gæðum og reynslu og geta boðið þjónustu á sem hagstæðustu verði til sem mestra fjarlægða hver á sínum stað. iPass þróar hugbúnað sem t.d. Snerpa dreifir til notenda sinna þannig að þjónustan verði sem aðgengilegust fyrir þá. Þessi hugbúnaður er sérstaklega hannaður með tilliti til öryggis í samskiptum á milli þeirra aðila og heimaþjónustu notandans.
Þegar þú ferðast utan Íslands, þá getur þú tengst hvaða iPass innhringihnút sem er í heiminum með því að nota símaskrárhugbúnaðinn frá iPass . Þú tengist með þínu eigin notandanafni og lykilorði (en bætir @snerpa.is aftan við notandanafn þitt, t.d. jonjons@snerpa.is). Notandanafn og lykilorð eru síðan dulrituð og send til okkar yfir Internetið og við gefum síðan viðkomandi leyfi (eða höfnun ef t.d. lykilorðið stemmir ekki) til að tengja þig og þar með ertu komin(n) í samband. Þetta tekur á milli fimm og tíu sekúndur eftir því hvar þú ert í heiminum. iPass heldur síðan utan um tengitíma þinn, og einungis er gjaldfært fyrir þann tíma sem þú ert í sambandi.
Hverjar eru takmarkanirnar?
Eina takmörkunin er hvernig póstur er meðhöndlaður þegar þú sendir hann frá þér. Af öryggisástæðum er einungis hægt að senda frá sér póst um póstkerfi Snerpu ef tengst er inn um innhringihnút Snerpu eða net sem beintengd eru Snerpu. Hinsvegar er vandalaust að sækja póst sem geymdur er hjá Snerpu hvaðan sem er. Til að senda póst ráðleggjum við þér að notast við vefpóstinn okkar en með honum getur þú sent póst og skiptir staðsetning þín þá engu máli.
Þessi þjónusta er unnin í samstarfi Snerpu og iPass.
