Almennir notkunarskilmálar
- Greiða skal vegna notkunar á netþjónustu samkvæmt gildandi
gjaldskrá Snerpu á hverjum tíma. Breytingar á gjaldskrá og
notkunarskilmálum eru tilkynntar á notendasíðum Snerpu á veraldarvefnum.
- Afnot af netfangi/tengingu eru bundin við einstaka persónu
(notanda). Notanda er með öllu óheimilt að veita þriðja aðila aðgang að
netaðgangi sínum með því að láta af hendi lykilorð aðgangsins eða opna
aðganginn þannig að lykilorðs sé ekki þörf. Þetta á þó ekki við um
fjölskyldumeðlimi sem hafa heimild rétthafans til að nota aðganginn.
Lykilorð ber að varðveita á tryggilegan hátt.
- Óheimilt er að nota netaðgang til að komast yfir upplýsingar um
aðra notendur kerfisins, eða notendur annarra kerfa, aðrar en þær sem
eru settar upp í opnum gagnagrunnum eins og veraldarvefnum (WWW).
- Óheimilt er að trufla að nauðsynjalausu eða að skerða á nokkurn
hátt afnot annarra notenda á tölvunetinu, t.d. með óeðlilegri dreifingu
pósts, "ruslpósti", keðjubréfum eða tilraunum til að trufla samtöl á
spjallrásum. Sama á við um óhæfilega mikla netumferð eða tilraunir til
að finna veikleika í tölvukerfum og netum. Snerpa áskilur sér rétt til
að takmarka netumferð hjá þeim notendum sem trufla notkun annarra,
þ.m.t. vegna óeðlilega mikils álags eða vanrækslu á netöryggi. Snerpa áskilur sér rétt til að loka tengingum hjá notendum sem valda mjög miklu álagi á sambönd um lengri tíma.
- Óheimilt er að hýsa á tengingum, heimasvæðum, dreifa á póstlistum, eða láta
liggja á lausu, t.d. á vefsvæðum, efni sem aðrir eiga eða eiga
höfundarrétt að nema leyfi viðkomandi liggi fyrir, efni sem brýtur gegn
íslenskum lögum, og/eða hvers kyns efni er ætlað er að lítillækka fólk
eða draga í dilka, hvað varðar trúarbrögð þess, kynferði, skoðanir eða
litarhátt.
- Gjald fyrir upphringitengingar er óháð notkun. Ef notkun netfangs
er hætt um lengri tíma en mánuð getur notandi látið loka því og falla
þá greiðslur vegna þess niður á meðan. Heimilt er að eyða netfangi ef
það hefur verið lokað í 3 mánuði. Athugið að ef netfangi er lokað vegna
vanskila, þá fellur greiðsluskylda ekki niður á meðan, þ.e. gjaldið er
innheimt þar til notandi óskar sjálfur eftir að netfanginu verði lokað.
Lokanir miðast við mánaðamót með a.m.k. 15 daga fyrirvara.
- Notanda ber að kynna sér og fara eftir nánari reglum um notkun á vef Snerpu (http://snerpa.is/thjonusta/Internet)
- Notandi skal að öllu leyti virða þær umgengnisreglur sem settar eru
notendum á Internetinu, þ.m.t. reglur sem gilda á öðrum hlutum þess og
þær notkunarreglur sem heildarsamtök aðila að Internetinu setja. Leiki
rökstuddur grunur á því að skilmálar þessir séu brotnir áskilur Snerpa
sér rétt til að stöðva notkun aðgangsins um lengri eða skemmri tíma.
- Snerpa er á engan hátt ábyrg vegna tjóns eða annars skaða sem kann
að leiða af því að notandi getur ekki notað netfang sitt eða tengingu
sína.
31. okt. 2005