Smartnet býður upp á öflugar gagnatengingar hraði allt að 70 Mbit/s til notenda og byggir á ljósleiðara eins nærri heimilum og kostur er. Möguleiki á sjónvarpsþjónustu frá Vodafone.
Við bjóðum einnig upp á Ljósnet Mílu á þeim stöðum sem það næst um land allt. Þar er hraði allt að 50Mbit/s til notenda og möguleiki á sjónvarpsþjónustu Símans.
Ljósleiðaratengingarnar eru með 100Mb hraða í báðar áttir og er með möguleika á sjónvarpsþjónustu frá Vodafone.
Er venjuleg nettenging ekki nóg fyrir þig? Við bjóðum upp á fyrirtækja tengingar með ýmsum auka möguleikum.
Við leggjum áherslu á öfluga fyrirtækjaþjónustu þar sem viðbragðstími er í lágmarki og fyrirbyggjandi aðgerðir hafðar að leiðarljósi.
Vantar þig hlutlausa ráðgjöf? Sérfræðingar okkar búa yfir víðamikilli reynslu á flestum af þekktari og öðrum minni þekktari lausnum á sviði upplýsingatækni.
Snerpa býður upp á margskonar rekstrarþjónustu og er lögð áhersla á að finna þá lausn sem hentar viðskiptavini best. Hýsum meðal annars vefsíður, netþjóna og margt fleira.
Við gerum nánast allt sem tengist tölvuviðgerðum. Gagnabjörgun, samsetning á vélbúnaði og margt fleira.
Lítur tölvan þín út fyrir að rolla hafi lent í viftunni á henni? Við reddum því, kíktu við.
Þarf að setja upp stýrikerfi á tölvunni þinni, eða setja það upp á nýtt? Kíktu með hana til okkar