Hvernig tengi ég allt saman?
Ath. á við um tengingu yfir kopar. Þegar notast er við ljósleiðara kemur ljósbreyta í stað línuskiptis (1) og símtæki (4) tengist beint í beininn (2).
-
Línuskiptir ( splitter )
Hlutverk línuskiptis er að sía út truflanir sem gætu haft áhrif á gæði tengingar
og er því nauðsynlegt að nota hann og tengja rétt
LINE Tengist við símainntakið eða tengil á vegg.
MODEM Tengist við beininn ( router ).
PHONE Tengist við síma. ( Hægt er að nota smásíu á síma í staðinn -
Beinir ( router )
Beinirinn er forstilltur og þarf því aðeins að setja hann í samband. -
Myndlykill
Myndlykil á að tengja í port 4 á beini. Hægt er að vera með fleiri myndlykla og
eru þeir þá tengdir með deili ( switch ) í port 4. -
Símtæki
Ef að símalagnir bjóða ekki upp á að tengja beint við línuskipti t.d. þegar fleiri en
eitt símtæki eru í notkun, þá má nota smásíu við þá síma sem ekki tengjast beint
við línuskiptinn. -
Fartölvur og önnur þráðlaus tæki
Þráðlausa netið á þessum beini er læst með WPA dulkóðun. Til að tengjast við
þráðlausa netið má finna lykillinn undir beininum við merkinguna WPA-PSK -
Borðtölvur
Borðtölvur má tengja beint við beininn í port 1-3. Ef það vantar fleiri tengi má
notast við deilir ( switch ) til að fjölgja tengjum.