Vegna viðhaldsvinnu þjónustuaðila á einni af þeim útlandagáttum sem Snerpa notar geta notendur fundið fyrir truflunum á erlendri netumferð í stutta stund á bilinu 22:00 - 02:00 í kvöld og nótt. Reiknað er með að truflunin vari ekki lengur en 30 mínútur.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.