Notendur Snerpu sem nota eða geta notað tvöfalt ISDN samband hafa átt í erfiðleikum sl. tvo daga við að tengjast. Lengi vel héldum við að þetta tengdist bilun sem kom upp í auðkenningarþjóni Snerpu en eftir að málið hafði verið kannað rækilega kom í ljós að bilunin er hjá Landssímanum.Landssíminn uppfærði hugbúnað í símstöðinni á Ísafirði nú fyrir helgina og eftir það hafa notendur sem hafa upphringitengingar sínar stilltar á tvöfalt ISDN átt í vandræðum við að tengjast og eru þessi vandræði yfirleitt tímabundin, þ.e. stundum er hægt að tengjast en stundum ekki. Virðast þessar bilanir standa yfir í einhverjar 5-10 mínútur í einu sem jafnlöngum hléum á milli. Landssíminn er að vinna að því að greina bilunina en hún nær yfir bæði Vestfirði og Vesturland. Notendur ættu að geta tengst eðlilega með því að taka af "Multilink" stillingar í upphringitengingum.
Skrifaðu athugasemd:
Eldri blogg
- Android forritin
- Snerpa kaupir hýsingarrekstur Netheima
- Eru ljósmyndirnar á öruggum stað?
- Gleðilega hátíð
- Er makkinn þinn öruggur?
- Nýr vefur Tálknafjarðarhrepps
- Snerpa styrkir sundfélagið Vestra
- Snerpa styrkir körfuknattleiksdeild UMFB
- Snerpa setur upp öflug netsambönd og semur við Ísafjarðarbæ
- BÍ/Bolungarvík og Snerpa í samstarf
- Eldri færslur

Snerpa | laugardagurinn 2. desember 2000