Stór verkefni á næstunni
Snerpa hefur unnið að áframhaldandi ljósleiðaravæðingu í sumar og er verið að ljúka við síðari helming ljósleiðaravæðingar á Bíldudal í næsta mánuði. Auk þess höfum við verið að leggja hér og þar inn á milli í þéttbýli. Að auki erum við í félagi við Orkubú Vestfjarða að leggja nýjan 18 km streng milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Þrjú önnur stór verkefni bíða í dreifbýli og verður hafist handa við þau á allra næstu dögum.
Okkur var að berast í dag stór sending af ljósleiðurum, alls 64 km sem dreifast á þessi þrjú verkefni sem eru lagning yfir Sauðanes milli Staðardals og Flateyrar í félagi við Orkubú Vestfjarða og Öryggisfjarskipti (Neyðarlínuna), einnig yfir Kistufell frá Syðridal að gangnamunna í Botnsdal með Öryggisfjarskiptum og síðan í félagi við Vegagerðina munum við leggja 30 km streng yfir Dynjandisheiði sem mun nýtast fyrir veðurstöðvar og myndavélar auk fjögurra nýrra farsímasenda. Einnig verður lagt í félagi við Orkufjarskipti niður frá gangamunna í Dagverðardal að tengibrunni Snerpu ofan Tunguhverfis. Og er þá ekki allt upp talið en við látum þetta nægja að sinni.