Thursday, 26. November 2026

Tilkynning – aukin árvekni vegna netöryggis

Vegna þess að viðbragðsáætlun almannavarna hefur verið virkjuð viljum við biðja alla um að sýna aukna árvekni í tölvupóstum og öðrum rafrænum samskiptum næstu daga.

Vinsamlega hafið sérstaklega í huga:

  • Ekki smella á tengla eða opna viðhengi ef eitthvað virðist óvenjulegt eða grunsamlegt.

  • Verið sérstaklega varfærin gagnvart skilaboðum sem kalla á skjót viðbrögð, innskráningu eða staðfestingu upplýsinga.

  • Athugið sendanda vel, jafnvel þótt pósturinn virðist koma frá aðila sem þið þekkið.

  • Ef þið eruð í vafa, ekki smella. Hafið frekar samband við okkur og látið skoða málið.

Það er alltaf betra að spyrja einu sinni of oft en einu sinni of sjaldan.

Förum varlega og pössum vel upp á öryggið.



Upp