Í bið
27. júní 2026
Ljósleiðaraslit við Pólgötu
Verktaki við vinnu tók í sundur ljósleiðara við Pólgötu á Ísafirði og hefur slitið áhrif á hluta Pólgötu, Mjógötu, Norðurveg og Hafnarstræti 12 og 14.
Uppfært kl. 13:34 - Að öllu óbreyttu mun viðgerð hefjast upp úr kl 16:00 á eftir.
Uppfært kl. 17:10 - Bráðabirgðaviðgerð á streng stendur yfir.
Uppfært kl 17:55 - Notendur eru byrjaðir að detta inn.
Uppfært kl 18:38 - Bráðabirgðaviðgerð lokið og allir notendur ættu að vera komnir inn. Fullnaðarviðgerð fer fram eftir helgi og má búast við rofi þegar hún fer fram.