Viðhald
30. apríl 2026
Viðhald á stofntengingum aðfaranótt 6. maí
Ljósleiðarinn hefur tilkynnt um fyrirhugaða vinnu við eina af stofntengingum okkar. Á meðan á framkvæmdunum stendur kann að verða allt að klukkustundar rof á þeirri tengingu, en umferð mun þá færast yfir á varatengingu, búast má við smávægilegum truflunum þegar það gerist.
Upphaf: 6. maí 2026 kl. 01:00
Áætluð lok: 6. maí 2026 kl. 05:00
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.