Ævintýri á gönguför
Úr fimmtíu senta glasinu ég fengið gat ei nóg,
 svo fleygði ég því á brautina og þagði,
 - en tók upp aðra pytlu og tappa úr henni dró
 og tæmdi hana líka á augabragði.
 
 Mér sortnaði fyrir augum og sýndist komin nótt,
 í sál og líkama virtist þrotinn kraftur.
 Ég steyptist beint á hausinn, en stóð upp aftur fljótt
 og steyptist síðan beint á hausinn aftur.
 
 Svo lá ég eins og skata, uns líða tók á dag,
 leit út sem mig enginn vildi finna.-
 Ég hélt væri dauður og hefði fengið slag
 og hefði kannski átt að drekka minna.
 
 Þó komst ég samt á fætur og kominn er nú hér,
 en kölski gamli missti vænsta sauðinn,-
 og loksins hefur sannast á Lazarusi og mér
 að lífið það er sterkara en dauðinn.
Erl.lag / Kristján Níels Júlíus Jónsson (Einnig þekktur sem K.N. Júlíus eða Káinn [1])